Beint í efni

Sláturhúsið á Hellu staðgreiðir kýr!

02.07.2002

Í nýrri samantekt um verð sláturleyfishafa í júlí hafa engar breytingar orðið á verðum til bænda, en helsta breytingin þó sú að sláturhúsið á Hellu staðgreiðir nú til bænda þær kýr sem koma til slátrunar.

 

Jafnvægi í framboði og eftirspurn hefur verið að skapast og er ljóst að álag á sumarmjólk og

aukning á greiðslumarki næsta verðlagsárs ástæða þess að lítið framboð er á kúm til slátrunar. Af þessum sökum hefur nú einn sláturleyfishafi tekið til ráðs að staðgreiða kýrnar og munar því nú verulegu á greiðslukjörum á milli sláturleyfishafa.

 

Sjá nánar á vefsíðu undir markaðsmálum; júlí 2002