
Um félagið:
Félag kúabænda var stofnað í Húnavatnssýslu árið 1985 og var starfsemi þess í upphafi fyrir bæði Austur og Vestur Húnavatnssýslur, en var svo skipt upp í sitt hvort félagið. Félag kúabænda í Austur Húnavatnssýslu er hagsmunafélag kúabænda á svæðinu. Markmið félagsins er að vinna að bættum hag kúabænda og efla samstöðu þeirra.
Stjórn 2022-2023 skipa:
- Ingvar Björnsson, Hólabaki (formaður)
- Ingibjörg Sigurðardóttir, Auðólfsstöðum (gjaldkeri)
- Maríanna Gestsdóttir, Hnjúki (ritari)
- Magnús Björnsson, Syðra-Hóli
- Lisa Hälterlein, Brúsastöðum