
SAM: 5,3% minni innvigtun en í febrúar í fyrra
17.03.2021
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 141,5 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (mars 2020 – febrúar 2021) og 121 milljón lítra á próteingrunni. Sala á próteingrunni dregst saman um heil 7% m.v. febrúar árið 2020 en ef litið er til síðustu 12 mánanaða dróst salan á próteingrunni saman um 4,7%. Á sama tíma hefur sala á fitugrunni dregist saman um 2,7%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 4,1% á próteingrunni og á fitugrunni um 2,7%.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregis saman miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 149,7 milljónum lítra sem er 2,2% samdráttur m.v. sama tímabil fyrir ári síðan. Bæði janúar og febrúar hafa skilað töluvert minni framleiðslu miðað við sömu mánuði í fyrra og nam heildar innvigtunin í febrúar 11,7 milljónum lítra, sem er tæplega 662 þúsund lítrum minna en í febrúar árið 2020 eða samdráttur um 5,3%. Innvigtun það sem af er ári 2021 er 23,7 milljón lítrar en á sama tímabili í fyrra var innvigtunin 25,2 milljónir lítra. Innvigtun fyrstu 2 mánaða ársins hefur því dregist saman um 5,8% frá fyrra ári.