
Rússar vilja herða kröfur um merkingar
19.05.2017
Rússland hefur lagt fram tillögu hjá Alþjóðlegu viðskiptastofnuninni (WTO) þess efnis að óheimilt verði í framtíðinni að nota orðin ostur, smjör, mjólk og ís um matvörur sem ekki innihalda mjólkurfitu. Þessi tillaga er mikið fagnaðarefni fyrir aðila í mjólkurframleiðslu enda ótal matvörur á markaðinum sem minna um margt á hefðbundnar mjólkurvörur en innihalda þó ekki mjólk eða efni unnin úr mjólk. Það er í sjálfu sér í lagi, ef ekki er á sama tíma verið að blekkja neytendur með því að kalla vörurnar nöfnum mjólkurvara.
Rússar hafa þegar sett bann heimafyrir á þessum forsendum og má t.d. ekki selja þar í landi matvöru sem „butter“ (smjör) nema mjólkurfita hafi verið notuð í framleiðsluna. Þá eru til ótal ísgerðir sem unnar eru úr jurtafitu en Rússar hafa einfaldlega bannað að kalla þetta ís! Ef nota á orðið ís í Rússlandi má einungis gera það ef mjólkurfita hefur verið notuð við framleiðsluna. Þess utan ber framleiðendum sem framleiða vörur sem minna á mjólkurvörur, án þess að innihalda mjólk eða hráefni úr mjólk, að merkja þær sérstaklega og skal á framhlið umbúðanna standa skýrt hvað varan innihaldi. Sambærilegar kröfur eru ekki gerðar til mjólkurvara og nægir þar að vera með innihaldslýsingu á hlið umbúða/SS.