Beint í efni

Opið fjós að Mýrum 3 í dag kl. 13-17

17.04.2008

Í dag verður opið fjós að Mýrum 3 á Heggstaðanesi, milli kl. 13 og 17. Fjósið er hannað fyrir 70 kýr, auk geldneyta. Það er með DeLaval mjaltaþjóni sem gangsettur var 6. desember sl. Fulltrúar frá Landstólpa, Líflandi og Vélaveri sem útveguðu búnað og innréttingar í fjósið, verða á staðnum.