Norðlægur stuðningur er sjónhverfing
09.02.2010
„Tal um stuðning ESB við svokallaðan norðlægan landbúnað er sjónhverfing. Við teljum að ekkert sé þar á bak við“, segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Samtökin hafa unnið að athugun á afleiðingum þess fyrir íslenskan landbúnað ef Ísland gengur í Evrópusambandið, meðal annars með fundum með samningamönnum Finna.
Haraldur segir að Finnar hafi fengið heimild til þess, með samningunum við ESB, að skilgreina hluta landbúnaðarins sem norðlægan og styrkja hann sérstaklega, þar til Evrópusambandið ákvæði annað. Stuðningurinn sé alfarið á kostnað finnskra skattgreiðenda. „Samkvæmt öllum reglum ESB stenst það ekki að einhver hluti landsvæðis þess fái sérmeðferð, það eiga allir að vera jafnir.“
„Mér hefur sjaldan brugðið jafn mikið og þegar þetta kom fram,“ segir Haraldur og vísar þá til funda með finnsku samningamönnunum og vinnu með íslenskum fræðimönnum á þessu sviði. „Maður verður sífellt meira undrandi á fullyrðingum um að hinu og þessu sé hægt að ná í samningum. Staðreyndin er sú að við erum í aðildarferli, ekki samningum, og nokkuð ljóst að ESB lagar sig ekki að okkur,“ segir Haraldur.
„Það er tímabært að menn fari að átta sig á staðreyndum málsins. Við getum ekki byggt aðildarviðræður á því sem við vonum eða væntum, heldur ísköldum staðreyndum, og verðum umfram allt að segja fólki rétt frá,“ segir Haraldur.
Neituðu aðild stjórnvalda
Finnsk stjórnvöld heimiluðu ekki fundi fulltrúa úr finnska landbúnaðarráðuneytinu með fulltrúum Bændasamtaka Íslands, nema fulltrúi íslenskra stjórnvalda væri viðstaddur. Það vildu Bændasamtökin ekki þar sem þau vinna sjálfstætt að sinni athugun á afleiðingum aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
„Þeir hafa heitið íslenska utanríkisráðuneytinu fullum stuðningi við að gera okkur að aðildarþjóð og vildu þar af leiðandi ekki hitta hagsmunaaðila héðan nema fulltrúar stjórnvalda væru einnig við borðið,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Fulltrúar Bændasamtakanna fóru eigi að síður til Finnlands til að afla upplýsinga um stöðu landbúnaðarins þar. Þeir hittu meðal annars embættismanninn sem samið hafði um landbúnaðarmálin fyrir Finna, á fundi hjá finnsku bændasamtökunum.
Morgunbladid 9. febrúar 2010
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is