Beint í efni

Mjólk til allra barna í dag

29.09.2010

Mjólkursamsalan býður í dag öllum leikskóla – og grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum en búist er við því að um 16 tonnum af mjólk verði deilt út í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins, sem nú er haldinn hátíðlegur í ellefta sinn. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim en það er Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna sem hvetur til að haldið sé upp á daginn. Á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum „Holl mjólk og heilbrigðir krakkar“.

 

Nánari upplýsingar um skólamjólkina má lesa á vefslóðinni: www.skolamjolk.is