Beint í efni

Lífland lækkar kjarnfóðurverð um 4%

11.11.2008

Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist frá Líflandi hf.

 

„Lífland hefur ákveðið að lækka verð kjarnfóðurs út nóvembermánuð um 4%.
Með þessu vill Lífland leggja sitt af mörkum til að koma til móts við bændur á erfiðum tímum.
Það er ljóst að gengisþróun síðustu vikna hefur ekki verið hagfelld, en lækkanir á verði hráefna erlendis hjálpa til og skapa allavega tímabundið svigrúm til lækkunar.
Gengisþróun krónunnar á næstunni  mun svo ráða því hvert framhaldið verður.  Verð kjarnfóðurs verður næst endurskoðað í byrjun desember.
Lækkunin tekur gildi miðvikudaginn 12. nóvember.“

Þeir sem vilja skoða þróun á heimsmarkaðsverði hráefna til kjarnfóðurframleiðslu, geta m.a. smellt hér.