Beint í efni

Hótel Saga áfram í greiðsluskjóli

21.10.2020

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á að framlengja greiðsluskjól Hótel Sögu ehf. og Bændahallarinnar ehf. til 7. apríl 2021 til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Fyrra greiðsluskjól rann út 7. október.

Veittur er fullur sex mánaða frestur sem lögin gera ráð fyrir, en þau voru samþykkt í sumar vegna COVID-19 faraldursins sem hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. 

Sigurður Kári Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, er aðstoðarmaður við fjárhagslega endurskipulagningu félaganna. Hann segir að í greiðsluskjóli felist félögin njóta greiðsluskjóls gagnvart kröfuhöfum sínum. „Forsendur þess að félögin fengu leyfið eru meðal annars að lögum um fjárhagslega endurskipulagningu væri fullnægt og ekki hafi komið fram mótmæli frá kröfuhöfum og ekki hafi verið veittar rangar upplýsingar um stöðu félaganna.“

Sigurður segir að í gangi séu virkar viðræður við nokkra aðila sem hafa áhuga á að koma að rekstri Hótel Sögu og mögulegum kaupum á fasteigninni. Ekki sé þó hægt að greina frá hverjir það séu.

Bændasamtök Íslands eiga bæði Hótel Sögu og Bændahöllina, en Hótel Saga er rekstrarfélag hótelsins.