Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Fyrsti haustfundur LK 2010 er í kvöld

14.10.2010

Í kvöld, kl. 20:30 í Þingborg í Flóa, verður haldinn fyrsti af fjórtán haustfundum LK þetta haustið. Á fundunum munu forsvarsmenn LK fara yfir stöðu helstu mála s.s. um framleiðslu, sölu og afkomumál, stöðu búvörusamninganna og fyrirhugaðar breytingar á búvörulögunum, greiðslumark mjólkur árið 2011 og skiptingu b- og c-greiðslna, endurskoðun búnaðargjalds,stöðu aðlögunarferlisins að Evrópusambandinu, kvótamarkaðinn auk þess sem farið verður yfir stefnumörkun LK. Sérstakur gestur fundarins í kvöld er Jón Bjarnason, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

 

Aðrir fundarstaðir haustfunda LK 2010 eru:

 

Mánudaginn 18. október verða haldnir fjórir fundir:

– Hlíðarbæ í Eyjafirði kl. 12.00

– Hótel Höfðabrekku í Mýrdal kl. 13.00

– Breiðumýri í S-Þingeyjasýslu kl. 20.30

– Seljavöllum í A-Skaftafellssýslu kl. 20.30

 

Þriðjudaginn 19. október verða haldnir fjórir fundir:

– Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 12.00

– Mælifelli, Sauðárkróki kl. 13.00

– Sjálfstæðishúsinu Blönduósi kl. 20.30

– Kaupvangi í Vopnafirði kl. 20.30

 

Miðvikudaginn 20. október verða haldnir tveir fundir:

– Friðarsetrinu Holti í Önundarfirði kl. 12.00

– Ásbyrgi í V-Húnavatnssýslu kl. 13.00

 

Fimmtudaginn 21. október verða haldnir þrír fundir:

– Hótel Hamri við Borgarnes kl. 13.00

– MS Búðardal kl. 13.00 og

– í Kaffi Kjós kl. 20.30

 

Kúabændur eru hvattir til að fjölmenna, auk allra annarra sem áhuga hafa á íslenskri nautgriprækt.