Framleiðendaverð á nautakjöti í nálægum löndum
30.08.2011
Landssamband kúabænda hefur aflað upplýsinga um framleiðendaverð á nautakjöti í nálægum löndum, Danmörku, Noregi og Norður-Írlandi. Ef dæmi er tekið um skrokk af ungnauti sem fellur í R 3 flokk (góða holdfyllingu með meðalfitu) sem vegur um 250 kg er verðið til bóndans eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Í Noregi er það lang hæst, 850 kr/kg (40,05 NOK) en svipað á Norður-Írlandi og Danmörku, 564 og 574 kr/kg (3,02 GBP og 25,95 DKK). Fyrir svipaðan skrokk hér á landi, UN 1 úrval A, fær bóndinn að jafnaði um 625 kr/kg.
Hér að neðan má svo sjá EUROP kjötmat á nautgripum en skv. stefnumörkun LK er gert ráð fyrir að slíkt mat verði tekið upp hér á landi á næstu misserum. Rétt er að taka fram að í sumum löndum er ræktun á gripum sem fara í E flokk, t.d. Belgian Blue, bönnuð vegna mikilla burðarerfiðleika. Slíkir gripir finnast ekki hér á landi./BHB