Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Fjárfestingastuðningur í nautgripa- og sauðfjárrækt

14.03.2022

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2021-2022 skal skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 15. mars.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

  1. Nýframkvæmda
  2. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

  1. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
  2. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
  3. Samþykktar teikningar ef við á.
  4. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 20% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt nr. 1252/2019, VIII. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2021-2022 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars.

Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

  1. Nýframkvæmda
  2. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

  1. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
  2. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
  3. Samþykktar teikningar ef við á.
  4. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag ár hvert en 10% af árlegri heildarupphæð fjárfestingastuðningsins skv. fjárlögum.