Beint í efni

Búnaðarþing sett í Hörpu

28.02.2016

Búnaðarþing 2016 var sett í dag í Hörpu við hátíðlega athöfn. Af því tilefni var landbúnaðar- og matarhátíð slegið upp þar sem gestum gafst kostur á að kynna sér úrval íslenskra búvara hjá nokkrum úrvinnslufyrirtækjum bænda, skoða búvélar og virða fyrir sér mannlífið í Hörpu.

Hvatningarverðlaun afhent í fyrsta skiptið
Fjölmenni var á setningarathöfninni, en alls voru um 400 manns viðstaddir. Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, flutti setningarræðu og Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði gesti og afhenti hvatningarverðlaun Bændasamtaka Íslands. Landbúnaðarráðherra veitti tveimur búum Landbúnaðarverðlaun.

Hlédís Sveinsdóttir athafnakona hlaut Hvatningarverðlaun BÍ. Hún hefur um árabil stuðlað að margvíslegu frumkvöðlastarfi sem hefur nýst landbúnaðinum til góðs. Samtök ungra bænda hlutu hvatningarverðlaunin fyrir verkefnið „Ungur bóndi á Snapchat“.

Landbúnaðarverðlaunin
Landbúnaðarverðlaunin 2016 hlutu annars vegar sauðfjárbúið Hríshóll í Reykhólasveit og hins vegar bændurnir á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í Þingeyjarsveit.

Ábúendur á Hríshóli eru hjónin Þráinn Hjálmarsson og Málfríður Vilbergsdóttir og hjónin Vilberg Þráinsson og Katla Ingibjörg Tryggvadóttir. Í rökstuðningi vegna verðlaunanna segir meðal annars að ábúendur á Hríshóli hljóti þau fyrir dugnað, framtakssemi og einstaklega snyrtilega umgengni á býli sínu.

Ábúendur á Stóru-Tjörnum eru Laufey Skúladóttir og Ásvaldur Ævar Þormóðsson, en þar er blandaður búskapur með sauðfé og nautgripi. Laufey er fædd og uppalin á Stóru-Tjörnum, en Ásvaldur er frá Ökrum í Reykjadal. Meðalnyt á búinu hefur farið ört vaxandi, var 6.293 lítrar árið 2008, sama ár og nýtt fjós var tekið í notkun á bænum, var 7.491 árið 2014 og fór upp í 7.860 í fyrra. Alls eru þau með 54 kýr, 60 aðra nautgripi, 150 kindur, 5 hesta, 2 hunda og 7 bordercollie-hvolpa auk þess sem 10 hænsni eru þar einnig.

Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og bóndi á Mýrum stýrði athöfninni í Hörpu. Dömur í Graduale-kórnum sungu nokkur lög og bóndinn Svavar Pétur Eysteinsson, Prins Póló, flutti nokkra af sínum þekktustu slögurum.

Tímarit Bændablaðsins kom út í dag og var dreift í Hörpunni.

Fyrir utan tónlistarhúsið var grillvagn sauðfjárbænda, hamborgarabíllinn Tuddinn ásamt dráttarvélum og öðrum tækjabúnaði sem bændur nota í sínum störfum. Meðal fyrirtækja sem verða á svæðinu eru MS, Sláturfélag Suðurlands, Sölufélag garðyrkjumanna, Flúðasveppir, Biobú, Kraftvélar, Vélfang, Fóðurblandan og Landbúnaðarháskóli Íslands.

Setningarræða Sindra Sigurgeirssonar, formanns BÍ

Landbúnaðarverðlaunin - verðlaunahafar


Sindri Sigurgeirsson setti Búnaðarþing 2016.


Hvatningarverðlaun BÍ. Hlédís Sveinsdóttir og fulltrúar Samtaka ungra bænda, Einar Elínarson og Bjarni Rúnarsson.


Handhafar landbúnaðarverðlauna ásamt landbúnaðarráðherra. Bændurnir á Hríshóli og Stóru-Tjörnum.