Beint í efni

Braut hefur rofið 100 tonna múrinn

05.04.2019

Afrekskýrin Braut 112 á Tjörn á Skaga hefur rofið 100 tonna múrinn í æviafurðum, en hún hafði í lok febrúar síðastliðinn mjólkað 99.821 kíló mjólkur yfir ævina. Dagsnyt hennar hefur verið ríflega 16 kíló og reikna menn því með að Braut hafi mjólkað sínu 100 þúsundasta kílói mjólkur þann 12. mars eða þar um bil. Braut 112 er fædd 12. september árið 2005, dóttir Stígs 97010 og Þúfu 026 frá Tjörn og er hún því á fjórtánda ári. Sagt er frá þessu á vef rml.is.

Braut bar sínum fyrsta kálfi þann 23 .október 2007 og hefur borið níu sinnum síðan þá, síðast 12. febrúar 2017. Mestum afurðum á einu ári náði Braut árið 2011 þegar hún mjólkaði 10.961 kg en hún hefur fjórum sinnum náð ársafurðum upp á meira en 10 þús. kg, 2010 (10.007 kg), 2011 (10.961 kg), 2012 (10.190 kg) og 2017 (10.699 kg). Mestu mjólkurskeiðsafurðir hennar eru á yfirstandandi mjólkurskeiði sem er orðið æði langt. Hún er nú komin í 19.220 kg frá síðasta burði. Á sínu 5. mjólkurskeiði mjólkaði hún hins vegar 14.630 kg.

Eðlilega hefur tímans tönn sett mark sitt á Braut enda fáar kýr sem bæði ná þessum aldri og afurðum. Það að kýr nái 14. vetra aldri í dag er að verða afar fátítt og hvað þá að þær skili slíkum afurðum. Það verður þó seint sagt annað en að Stígur 97010 hefur skilað fjölmörgum endingargóðum kúm. Braut fer von bráðar á vit feðra sinna en hún glímir nú við erfiða júgurbólgu auk þess sem að hún hefur ekki náð að festa fang. Þrátt fyrir júgurbólgu nú hefur Braut alla tíð verið ákaflega júgurhraust sem best sést á því að af 88 kýrsýnum hefur aðeins 1 mælst yfir 400 þús. í ml. og einungis fimm farið yfir 250 þús. í ml. Hins vegar hafa 52 sýni mælst undir 100 þús. í ml.

Óskar LK ábúendum á Tjörn til hamingju með þessa frábæru kú sem Braut hefur reynst vera.

Mynd er fengin af vef RML.