Aðalfundur LK og Fagþing á morgun!
30.03.2016
Aðalfundur Landssambands kúabænda 2016 verður settur í ráðstefnusal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík á morgun kl. 10.00 árdegis. Líkt og í fyrra verður Fagþing nautgriparæktarinnar haldið samhliða aðalfundinum og er stefnt að setningu þess kl. 12.30 í áðurnefndum fundarsal ÍE.
Dagskrá aðalfundarins og Fagþingsins er að finna hér, en bæði aðalfundurinn og Fagþingið er að sjálfsögðu opið fyrir alla kúabændur landsins sem og annað áhugafólk um nautgriparækt. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta/SS.