Beint í efni

Hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt

07.11.2026

13:00 - 16:15

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Dagskrá er eftirfarandi:

13:00 Setning – Ólafur Þórisson formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands

13:10 Hrossaræktarárið 2026 – Þorvaldur Kristjánsson

13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2026 heiðraðar og afkvæmahestur

13:50 Verðlaunaveitingar:

-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)

-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)

-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)

Kaffihlé

Hófar og heilbrigði:

  • Áhrif hóflengdar á áhættuna á ágripum – Þorvaldur Kristjánsson
  • Hófar og heilbrigði – Gestur Páll Júlíusson

15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2026

Fundarslit um 16:15

Allir velkomnir!

‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌