Beint í efni

ESB og landbúnaður - staðreyndir

VISSIR ÞÚ

1

Að Finnland fékk ekki undanþágu frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB (CAP)?

2

Að finnska leiðin er varanleg sérlausn innan reglna ESB en ekki undanþága frá stefnu sambandsins í landbúnaði?

3

Að sérfræðingur á vegum stjórnvalda metur 100% líkur á því að nýir búfjársjúkdómar myndu berast til landsins innan fimm ára?

4

Að þegar Finnland gekk í ESB árið 1995 féll verð til bænda um 40%? Matarverð lækkaði um 11%.

5

Að eftir þrjátíu ára veru í ESB greiðir finnska ríkið sjálft stuðning við eigin landbúnað á norðurslóðum til viðbótar við það sem ríkið greiðir til ESB?

6

Að íslenskir búfjárstofnar hafa verið einangraðir frá landnámi, í meira en 1.100 ár?

7

Að stefnumarkandi áætlun Finnlands um útfærslu á stuðningskerfi er 1200 blaðsíður?

8

Að samkvæmt skýrslu frá 2011 var reynt að meta stuðningsþörf við íslenska mjólkurframleiðslu ef að framleiðslan myndi dragast saman um 40%?

9

Að Finnland taldi sameiginlegu landbúnaðarstefnuna ekki nægja til að halda uppi landbúnaði um allt land?

10

Að það er kaldara á sumrin á Íslandi til ræktunar heldur en í Norður Finnlandi?

11

Að landbúnaður á harðbýlum svæðum Evrópu, lengst í norðri og í fjalllendi hefur vegnað verr en annarsstaðar og landbúnaðar þar hefur gefið eftir?

12

Að stærsti hluti stuðnings til íslenskra bænda í dag tengist framleiðslu matvæla, en stuðningur ESB er að mestu tengdur landi og umhverfisverkefnum?

13

Að Finnland greiðir sjálft um 57% af kostnaði við harðbýlisstuðning sinn?

14

Að landbúnaðarland hefur dregist mest saman á norðlægum og harðbýlum svæðum Evrópu?

15

Að Ísland er kaldara til ræktunar en stór hluti Norður-Finnlands?

16

Að aðeins um 0,3% af landbúnaðarlandi Finnlands er á köldustu framleiðslusvæðunum?

17

Að Finnland fór fram á tólf ára aðlögun að sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB en fékk ekki?

18

Að Finnland var með yfir 130 samningsmarkmið fyrir landbúnaðinn í aðildarviðræðum við ESB?

19

Að einn af aðalsamningamönnum Finnlands sagði að ESB væri mjög tregt til varanlegra breytinga á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni en mun opnara fyrir tímabundnar aðlögunarráðstafanir?

20

Að búvörusamningar Íslands eru ákveðnir af Alþingi en sameiginlega landbúnaðarstefnan er ákveðin af stofnunum ESB?

21

Að ekkert aðildarríki hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu landbúnaðarstefnunni?

22

Að Ísland gæti ekki haldið áfram eigin fríverslunarsamningum við ríki eins og Kína ef landið gengi í ESB?

23

Að Ísland væri líklega ekki gjaldgengt í stærsta innviðasjóð ESB?

24

Að greiðslumark í mjólk og sauðfé myndi missa gildi sitt við ESB-aðild?

25

Að íslenskir bændur framleiða meiri mat en áður með færra vinnuafli?

26

Að tekjufall vegna afnáms tollverndar gæti orðið mun meira en ávinningurinn af lægri vöxtum?

27

Að um 60% af framleiðslutekjum bænda á harðbýlum svæðum Evrópu koma frá stuðningi?

28

Að íslenskir bændur fjárfesta minna í dag en fyrir tuttugu árum?

29

Að stystu aðildarviðræður að ESB í sögunni tóku 31 mánuð?

30

Að íslenskur landbúnaður stendur undir matvælaframleiðslu á landi þar sem sumrin eru kaldari en víða í Norður-Finnlandi?

31

Að ekkert nýtt aðildarríki ESB hefur fengið að halda eigin landbúnaðarstefnu eftir inngöngu?

32

Að þegar bú hætta tapast ekki bara matvælaframleiðsla heldur einnig viðskipti fyrir verktaka, flutningsaðila, vélaverkstæði og úrvinnslufyrirtæki?

33

Að óvissa um framtíð rekstrarumhverfis getur tafið fjárfestingar í dreifbýli um árabil?

34

Að íslenskur landbúnaður er ein af undirstöðum búsetu víða um land?

35

Að Ísland er strjálbýlara en flest svæði Evrópu, þar á meðal nyrstu héruð Finnlands og Svíþjóðar?

36

Að þegar búskapur dregst saman hefur það áhrif langt út fyrir túnfótinn?

37

Að ESB hefur einkarétt á tollamálum aðildarríkjanna?

38

Að Írland, Malta og Kýpur fengu ekki undanþágu frá landbúnaðarstefnu ESB eða öðrum stefnum sambandsins þrátt fyrir eyjastöðu sína?

39

Að ákvæði ESB um ystu svæði (349. gr. TFEU) á ekki við um aðildarríki heldur bara svæða innan aðildarríkja?

40

Að Evrópuréttur gengur framar landslögum aðildarríkja þegar árekstur verður?

41

Að samheldnissjóðir ESB eru fyrst og fremst ætlaðir efnahagslega veikari ríkjum og svæðum?

42

Að ríki innan ESB mega ekki vernda innlenda framleiðslu eingöngu vegna þess að hún er innlend?

43

Að aðeins tveir sjúkdómar af aðalskrá Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar hafa verið staðfestir í íslensku búfé?

44

Að aflífa þurfti mörg hundruð þúsund kindur á síðustu öld til þess að losna við innflutta sjúkdóma?

45

Að sameiginlega landbúnaðarstefna ESB hefur verið endurskrifuð aftur og aftur vegna ágreinings milli ríkja?

46

Að landbúnaðarstefna ESB varð til sem pólitísk málamiðlun milli þýsks iðnaðar og fransks landbúnaðar?

47

Að stuðningur í ESB byggir fyrst og fremst á landi, umhverfisaðgerðum og fjárfestingum en ekki framleiðslu matvæla?

48

Að meira en 80% af verðmæti innfluttra matvæla til Íslands er þegar án tollverndar?

49

Að samkvæmt áhættumati fyrir íslensk stjórnvöld voru metnar 100% líkur á að þrír alvarlegir nautgripasjúkdómar næðu fótfestu hér innan fimm ára frá innflutningi?

50

Að fyrir fimm af níu sjúkdómum sem skoðaðir voru í áhættumati stjórnvalda var niðurstaðan „mikil áhætta“?

51

Að framkvæmdastjórn ESB taldi árið 2011 að bann Íslands við innflutningi lifandi dýra samræmdist ekki reglum sambandsins?

52

Að EFTA-dómstóllinn hafnaði sérstöðu Íslands í hinu svokallaða hráa kjötmáli?

53

Að ekkert aðildarríki ESB hefur fengið varanlega undanþágu frá reglum um innflutning lifandi búfjár?

54

Að helsta áskorunin við að halda banni við innflutningi lifandi dýra væri pólitísk en ekki vísindaleg?

55

Að sameiginlega landbúnaðarstefna ESB (CAP) hefur verið eitt umdeildasta mál Evrópusambandsins frá upphafi?

56

Að ekkert aðildarríki í Evrópu fær nákvæmlega þá landbúnaðarstefnu sem hún vill?

57

Að landbúnaðarstefna ESB er mótuð af 27 ríkjum með mjög ólíka hagsmuni?

58

Að Evrópudómstóllinn hefur ítrekað staðfest að aðildarríki geti ekki einhliða vikið frá sameiginlegu landbúnaðarstefnunni?

59

Að jafnvel Finnland hefur þurft að berjast í áratugi fyrir því að norðlægar aðstæður landsins fengu viðurkenningu innan ESB?

60

Að ESB samþykkti ekki kröfur Finna um að halda eigin reglum vegna sérstöðu landsins?