Beint í efni

Veffundur 4. mars kl. 12.30 – Óbyggðanefnd sækir að eignaréttindum bænda

26.02.2024

Óbyggðanefnd hefur lýst kröfum sem ná til allra eyja, skerja og annarra landfræðilegra eininga utan meginlandsins en innan landhelginnar sem eru ofansjávar á stórstraumsfjöru. Aðeins örfáar stærri eyjar eru undanskildar í kröfugerðinni.

Bændasamtökin telja ljóst að flestir bændur sem eiga land að sjó muni þurfa að bregðast við kröfum óbyggðanefndar, en bregðast þarf við fyrir 15. maí 2024.

 Á veffundinum mun Gunnar Ingi Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður sem hefur mikla reynslu af málsmeðferð Óbyggðanefndar fara yfir hvað felst í kröfugerðinni, hvaða gögnum bændur geta safnað til að styðja kröfur sínar um eignarréttindi o.fl. Einnig mun lögmaðurinn svara spurningum.

Fundurinn er einungis opinn félagsmönnum og hvetjum við félagsmenn sérstaklega til að gefa sér tíma og taka þátt í veffundinum