Útflutningur mjólkurvara frá Evrópu mun aukast
07.02.2012
Samkvæmt spá Evrópusambandsins um þróun landbúnaðar í Evrópu fram til ársins 2020 má búast við því að útflutningur á osti og mjólkurdufti muni aukast en draga muni úr útflutningi á smjöri. Byggir þetta álit á mannfjöldaspám þróunarlanda samhliða bættum lífskjörum í löndum utan Evrópu. Settur er þó sá fyrirvari við þessa spá að gengi Evrunnar haldist nokkuð stöðugt frá því sem nú er.
Gangi þessi spá eftir, má búast við aukinni mjólkurframleiðslu frá því sem nú er og fram til ársins 2020 um 4,5%/SS.