Beint í efni

Trausti Hjálmarsson býður sig fram til áframhaldandi formennsku í Bændasamtökum Íslands

27.02.2026

Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi Austurhlíð, sækist eftir að verða formaður Bændasamtaka Íslands. Trausti hefur gengt embættinu frá 2024 og sækist eftir endurkjöri. Framboðsfrestur til embættis formanns rennur út á miðnætti 2. mars 2026.

Aðalstarf Trausta er sauðfjárbúskapur en því til viðbótar hefur hann verið starfandi formaður Bændasamtakanna síðan 2024. Trausti starfaði við rúning og járningar á árum áður ásamt því að hafa starfað við tamningar. Hann er menntaður búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.

Trausti var í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda síðar deild sauðfjárbænda í Bændasamtökum íslands frá árinu 2017-2024. Þar sinnti hann formennsku deildarinnar frá 2022-2024.

"Ég tel að það séu mikil tækifæri fyrir íslenskan landbúnað til sóknar og hef áhuga á að fylgja málum áfram sem ég hef unnið að með stjórn Bændasamtakanna og stjórnum búgreinadeildanna síðustu tvö árin."

Rafræn kosning mun standa í 48 klukkustundir frá klukkan 11:00 þann 17. mars til klukkan 10:59 þann 19. mars. Slóð á kosningasíðuna verður gerð aðgengileg á heimasíðu Bændasamtakanna, bondi.is, og send félagsmönnum í tölvupósti þegar kosning hefst. 2599 einstaklingar eru á kjörskrá, en til að öðlast kosningarétt þurfti að greiða félagsgjöld fyrir 19. janúar 2026. Félagsmenn þurfa að skrá sig með rafrænum skilríkjum til að geta kosið. Allir aðilar sem skráðir voru á félagsaðild 19.janúar.2026 geta kosið, þannig geta fleiri en einn haft kosningarétt frá sama búi. Hægt er að kjósa oftar en einu sinni, en einungis síðasta atkvæðið gildir.

Niðurstaða formannskosningar verður tilkynnt á fyrsta degi Búnaðarþings, 23. mars 2026 af kjörstjórn.