Beint í efni

Stærsta ostagerð á suðurhveli jarðar!

09.07.2015

Matvælafyrirtækið Lion í Ástralíu er nú með í byggingu nýja sérostagerð í Tasmaníu og hefur framleiðslustaðurinn verið nefndur „The Heritage“ og er það vísað til uppruna og trúlega þarlendra hefða. Í hinni nýju ostagerð verða framleiddir hefðbundnir fastir gulir ostar en einnig bæði hvítir ostar og mygluostar. En þetta væri í sjálfum sér ekki nein frétt, enda verið að byggja ostavinnslur um allan heim, ef ekki væri vegna þess að um risafjárfestingu er að ræða.

 

Alls mun Lion verja 16 milljörðum króna í uppbygginguna og þegar ostavinnslan verður komin í fullan gang verður um að ræða stærstu ostavinnslu á suðurhveli jarðar/SS.