Beint í efni

SS hækkar verð á nautakjöti

25.08.2025

Sláturfélag Suðurlands (SS) hækkar verð á nautakjöti frá og með deginum í dag, 25. ágúst 2025.

Hækkunin er jöfn, 2,5% (2,4-2,6%) á alla flokka, ungneyti (UN), Ungar kýr, Kýr, Naut, Alikálfa og Ungkálfa.
Þrjár undantekningar eru á hækkuninni, ungar kýr KU undir 200 kg í P flokk hækka um 10,7%, ungar kýr undir 200 kg í P+ flokk hækka um 3,9% og ungar kýr undir 200 kg í O- flokka hækka 5,2%.

Nýja verðskrá má finna á heimasíðunni og hér.