Beint í efni

Sigurbjörg Ottesen gefur kost á sér til formannssetu í deild Nautgripabænda

18.02.2026

Sigurbjörg Ottesen hefur tekið ákvörðun um að bjóða sig fram til formanns deildar nautgripabænda BÍ en kosið verður um nýjan formann deildarinnar á deildarfundi nautgripabænda þann 24. mars nk.

Sigurbjörg er nautgripabóndi á Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Hún er gift Gunnari Guðbjartssyni og eiga þau fjögur börn. Sigurbjörg var kosin í stjórn LK árið 2020 og hefur setið í stjórn deildar nautgripabænda BÍ síðan gömlu búgreinafélögin sameinuðust undir Bændasamtökin. Síðastliðin tvö ár hefur hún setið sem varaformaður nautgripabænda á sama tíma og hún hefur setið í stjórn Bændasamtaka Íslands.

Sigurbjörg greindi frá ákvörðun sinni á facebook síðu sinni en pistil hennar má finna hér að neðan.

Kæru félagar, góðir nautgripabændur!

Ég hef tekið ákvörðun um að bjóða mig fram til formanns deildar nautgripabænda BÍ.

Ég býð mig fram af einfaldri og skýrri ástæðu; ég trúi því að íslensk nautgriparækt eigi bjarta framtíð – ef við stöndum saman, tölum skýrt og tökum sjálf virkan þátt í mótun greinarinnar.

Nautgriparækt er ekki bara atvinnugrein. Hún er ein grunnstoða í íslenskum landbúnaði, í fæðuöryggi þjóðarinnar og byggðar um allt land. Nautgriparæktin byggir á kynslóðum þekkingar, seiglu og ábyrgðar – en hún stendur líka frammi fyrir raunverulegum áskorunum. Við búum við aukinn kostnað, kröfur um meiri hagkvæmni, aukna umhverfisábyrgð og hraðar breytingar í samfélaginu og neyslumynstri. Þetta eru ekki nein smámál fyrir okkur að etja við.

Ég vil að deild nautgripabænda sé skýr rödd inn í Bændasamtökin og öflugur málsvari bænda gagnvart stjórnvöldum og samfélaginu öllu. Deild sem áfram hlustar á bændur, miðlar skýrum upplýsingum og vinnur markvisst að raunhæfum lausnum.

Kynbótastarf er eitt af sterkustu verkfærum okkar bænda. Við eigum að vera stolt af þeim árangri sem að við höfum náð með íslenska kúastofninn, þó megum við ekki staðna.

Ég vil efla samtal bænda, fagfólks og rannsókna þannig að kynbætur, ný tækni og okkar eigin reynsla heima á búunum vinni saman – alltaf með rekstrarhagkvæmni og velferð gripanna okkar að leiðarljósi. Fóðrun og bústjórn skipta þar sköpum. Betri nýting fóðurs, skýrari greining á rekstri og aðgengileg ráðgjöf skila bæði betri afkomu og minni umhverfisáhrifum. Þar eigum við enn tækifæri til að gera betur – saman.

Þá eru það loftslags- og umhverfismálin. Ég vil að við nálgumst þau af raunsæi og fagmennsku. Nautgripabændur eru hluti lausnarinnar, ekki vandamálið. Við bindum kolefni, nýtum landið og framleiðum hágæða matvæli með ábyrgum hætti. Það þarf að segja frá því – með skýrum hætti, af festu og með staðreyndir að vopni.

Ég mun vinna, hlusta og tala máli bænda. Og legg mikla áherslu á að standa vörð um greinina okkar á tímum breytinga.


Vekjum við athylgi félagsmanna á því að hafi þeir áhuga á að gefa kost á sér til formanns og/eða stjórnar deildarinnar er þeim velkomið að hafa samband við Guðrúnu Björgu (gudrunbjorg@bondi.is) til að tilkynna framboð sitt. Í boði er að auglýsa framboð sitt á heimasíðu deildarinnar og á miðlum BÍ kúabænda.