Beint í efni

SAM: Janúaryfirlit 2026

25.02.2026

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) hafa birt framleiðslu-, sölu- og birgðayfirlit vegna janúar mánaðar 2026. Í yfirlitinu kemur fram að sala á fitugrunni var 152,1 milljón lítra síðustu tólf mánuði (febrúar 2025 -  janúar 2026) og 132,2 milljónir lítra á próteingrunni. Salan á próteingrunni jókst þannig um 0,4% á þessu tólf mánaða tímabili en salan á fitugrunni dróst saman um 0,2% samanborið við sambærilegt tímabil tólf mánuðina þar á undan. Sé horf á söluna undanfarna þrjá mánuði, þá jókst salan á próteingrunni um 1,5% og var 2,2% meiri í janúar 2026 samanborið við janúar 2025. Salan á fitugrunni dróst saman um 0,3% síðustu þrjá mánuði og var salan 1% minni í janúar 2026 samanborið við janúar 2026.

Mjólkurframleiðslan hefur á undanförnum tólf mánuðum aukist um 2,3% samanborið við sambærilegt tímabil tólf mánuðina þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur síðustu tólf mánuðina 157,3 milljónum lítra. Heildarinnvigtun í janúar 2026 var 13,3 milljónir lítra samanborið við 12,8 milljónir lítra í janúar 2025, sem er aukning um 533 þúsund lítra eða 4,2%. Nýting greiðslumarks fyrir fyrsta mánuð ársins er 8,7%.