Beint í efni

SAM: Innvigtun ársins komin í 97 m.ltr.

26.08.2026

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) hefur birt framleiðslu-, sölu- og birgðayfirlit vegna júní og júlí mánaðar 2026 en sökum sumarleyfa láðist að fjalla um yfirlit júní mánaðar. Í þessari umfjöllum verða mánuðirnir teknir saman en miðast tölur „síðustu tólf mánaða“ við júlí mánuð og þar með tímabilið ágúst 2025 – júlí 2026.

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 153,7 milljón lítra síðustu tólf mánuði (ágúst 2025 – júlí 2026) og 133,7 milljónir lítra á próteingrunni. Sala á próteingrunni eykst um 4,1% miðað við júlí 2025 en ef litið er til síðustu tólf mánaða jókst salan á próteingrunni um 1,7%. Á sama tíma jókst sala á fitugrunni um 0,9% en í júlí 2026 var fitusalan 3,9% meiri en í júlí 2025. Sé horft til þriggja mánaða tímabils (undanfarna þrjá mánuði) þá jókst próteinsalan um 3,4% og fitusalan um 2,6% miðað við sambærilegt tímabil árið áður.

Á sama tímabili, þ.e. síðustu tólf mánuði, hefur mjólkurframleiðslan aukist um 3,9% miðað við sambærilegt tímabil mánuðina tólf þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur sl. tólf mánuði 160 milljónum lítra.

Innvigtun í júnímánuði nam 14,7 milljónum lítra samanborið við 13,8 milljónir lítra í júní 2025. Nam aukningin 6,5% eða 894.942 lítrum. Innvigtun í júlímánuði nam 14,3 milljónum lítrum samanborið við 13,7 milljónum lítra í júlí 2025. Um er að ræða aukningu upp á 3,9% eða 531.044 lítra. Sé horft á mánuðina saman, þá jókst framleiðslan í sumar um rúmlega 1,4 milljónir lítra samanborið við síðasta sumar. Það sem af er ári 2026 nemur heildarinnvigtun mjólkur 97,1 milljónum lítra, en á sama tíma í fyrra var innvigtunin 93,8 milljónir lítrar. Fyrstu sjö mánuði ársins hefur innvigtun mjólkur þannig aukist um tæplega 3,3 milljónir lítra eða 3,5% miðað við 2025.

Nýting greiðslumarks það sem af er ári er 63,5%.