Beint í efni

Nýr leiðari: kvótamarkaður og hámarksverð

08.08.2020

Í nýjasta leiðaranum hér á naut.is fer Herdís Magna Gunnarsdóttir yfir fyrirkomulag kvótamarkaðar en nú er ljóst að hámarksverð verður á viðskiptum með kvóta sem nemur þreföldu afurðastöðvaverði. Hefur það fyrirkomulag verið fest í sessi út árið 2023. Í leiðaranum skrifar hún meðal annars: „Í mínum huga var það orðið nokkuð ljóst að mest aðkallandi fyrir greinina var að fá einhvern stöðugleika og stöðva endalaust hringl með kvótaverð svo að hreyfing kæmist á viðskipti. Samningar náðust loks um að hámarksverð yrði á kvótamarkaði en það myndi miðast við þrefalt afurðastöðvaverð.“

Þá fer hún einnig yfir þann mikla þrýsting sem nú er kominn á viðskipti með greiðslumark: „Það hefur verið erfitt að hugsa til þeirra bænda sem hafa setið í slæmri stöðu hvort sem þeir hafi verið að reyna að stíga út úr greininni eða vantað greiðslumark til að nýta fjárfestingar sínar betur. Allur tíminn sem hefur farið í hringl fram og til baka með viðskiptafyrirkomulag greiðslumarks og biðin eftir að fá einhvern stöðugleika í greinina hefur tekið á.“

Hægt er að lesa leiðarann með því að smella hér.