
Nýársfréttabréf 25/26
01.01.2026
Kæru skógarbændur,
Þegar við lítum yfir árið sem er að líða er óhætt að segja að 2025 hafi verið ár uppbyggingar, tengslanets og mikilvægra skrefa til framtíðar fyrir skógarbændur á Íslandi.
Á árinu hafa Bændasamtökum Íslands unnið markvisst að því að styrkja stöðu skógræktar sem sjálfbærrar og verðmætrar búgreinar, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Hér eru nokkur af því sem helst hefur áunnist:
Sterkara alþjóðlegt samstarf
Bændasamtökin hafa nú formlega gengið til samstarfs við norræn og evrópsk samtök skógarbænda (NSF og CEPF). Með því hefur skapast aðgangur að öflugu tengslaneti, upplýsingum um regluverk ESB og tækifærum til að koma sjónarmiðum íslenskra skógarbænda beint að borðinu þar sem ákvarðanir eru teknar. Fundir og ferðir erlendis hafa reynst afar gagnlegar, bæði til að miðla okkar reynslu og afla þekkingar sem nýtist heima fyrir.
Virk hagsmunagæsla og samráð
Áhersla hefur verið lögð á samtal við stjórnvöld og stofnanir um skógrækt, landnotkun, loftslagsaðgerðir og einföldun ferla. Umsagnavinna í Samráðsgátt hefur aukist og þar hafa Bændasamtökin komið sjónarmiðum skógarbænda skýrt og faglega á framfæri.
Skógrækt og loftslagsmál
Unnið hefur verið áfram að málum tengdum kolefnisbindingu og kolefnismörkuðum, meðal annars í tengslum við Kolefnisbrúna og málþingið SÓL-KOL. Áherslan er skýr: raunhæf nálgun, langtímahugsun og samþætting kolefnisbindingar við hefðbundna nýtingu skógarafurða.
Sérverkefni og fagleg þróun
Á árinu var meðal annars unnið að verkefnum sem tengjast CE-merkingu á timbri, þátttöku í fagráðstefnu skógræktar og undirbúningi málþings skógarbænda, sem verður haldið árið 2026. Þessi vinna leggur grunn að aukinni verðmætasköpun og sterkari stöðu innlends timburs.
Betri upplýsingamiðlun og tengsl við félagsmenn
Ákveðið var að færa miðlun skógarbænda inn á heimasíðu Bændasamtaka Íslands, þar sem nú er unnið að uppbyggingu sérstaks svæðis fyrir Skóg-BÍ. Jafnframt var komið á reglubundnu mánaðarlegu fréttabréfi, sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og styrkir tengsl og upplýsingaflæði til félagsmanna.
Félagsstarf og samstaða
Félögum í búgreinadeild skógarbænda fjölgaði á árinu og eru nú 193 talsins. Því fleiri sem taka þátt, því sterkari verður sameiginleg rödd skógarbænda.
Horft til 2026
Fram undan er spennandi ár þar sem áfram verður unnið að því að styrkja stöðu skógræktar innan landbúnaðar og í opinberri stefnumótun. Helstu áherslur næsta árs verða meðal annars:
- vinna við búvörusamninga og framtíðarstöðu skógræktar,
- einföldun leyfis- og framkvæmdarferla í samstarfi við stjórnvöld,
- áframhaldandi alþjóðlegt samstarf og miðlun þekkingar heim,
- og frekari efling upplýsingamiðlunar og samskipta við félagsmenn.
Grunnurinn sem lagður var á árinu 2025 gefur góða von um áframhaldandi framfarir.
Að lokum vil þakka kærlega fyrir góðar móttökur og jákvætt samstarf eftir að ég tók við starfi í september. Það hefur verið afar ánægjulegt að kynnast ykkur, starfinu og þeim fjölbreyttu verkefnum sem skógarbændur standa að um allt land.
Á þessum stutta tíma hef ég séð mikinn kraft, metnað og tækifæri í starfi deildarinnar. Vinnan sem hefur verið unnin er frábær og margt spennandi fram undan. Ég hlakka til að byggja áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið og vinna með ykkur að því að efla skógrækt og styrkja stöðu skógarbænda enn frekar.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vona að þið hafið átt notalegar og góðar stundir yfir hátíðirnar. Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs á nýju ári.
Með bestu kveðjum,
Sólrún Þórðardóttir