
Ný nautaskrá
16.11.2019
Nautaskrá fyrir veturinn 2019-20 er væntanleg úr prentun og verður dreift til bænda innan skamms.
Í skránni er að finna upplýsingar um þau reyndu naut sem eru í dreifingu núna, nýju Angus-holdanautin auk fræðsluefnis.
Þar má nefna upplýsingar um verkefnið um erfðamengisúrval, afurðaúthald, afkvæmadóm nauta fæddra 2013, kynbótamat reyndra nauta sem farið hafa úr dreifingu á síðustu mánuðum og fleira.
Aðstandendur nautaskrárinnar segjast vona að kúabændur og áhugamenn um nautgriparækt hafi bæði gagn og gaman af skránni.
Á meðan beðið er eftir prentuðu eintaki má nálgast Nautaskrá 2019 HÉR.