Beint í efni

Norðlenska ehf. og Búsæld ehf. funda með bændum

12.02.2007

Eins og undanfarin ár efna Búsæld ehf. og Norðlenska ehf. til umræðu- og kynningarfunda með bændum á viðskiptasvæði félaganna. Sjö fundir hafa verið ákveðnir og verða þeir dagana 14. til 21. febrúar nk.
Á fundunum verður m.a. rætt um rekstur og rekstrarhorfur Norðlenska, rekstur Búsældar, breytingar á eignarhaldi Norðlenska og horfur á kjötmarkaði.
 

Fundirnir verða sem hér segir:

Miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20.30 – Félagsheimilið Ljósvetningabúð
Mánudaginn 19. febrúar kl. 13.00 – Hótel Kirkjubæjarklaustur
Mánudaginn 19. febrúar kl. 16.30 – Barnaskólinn Hofi Öræfum
Mánudaginn 19. febrúar kl. 20.30 – Mánagarði Hornafirði
Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 10.30 – Hótel Bláfell Breiðdalsvík
Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 14.00 – Gistihúsið Egilsstaðir
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 20.30 – Hótel Sveinbjarnargerði.
Forsvarsmenn Norðlenska og Búsældar mæta á fundina.
Mikilvægt er að sem flestir bændur mæti og taki virkan þátt í fundunum.