Beint í efni

Niðurstaða könnunar um áframhaldandi vinnu við að skoða möguleika á innflutningi á erlendu erfðaefni í íslenska mjólkurkúastofninn

18.02.2026

Stjórn Nautgripabænda stóð fyrir könnun dagana 13. – 17. febrúar meðal félagsmanna varðandi áframhaldandi vinnu við að skoða möguleika á innflutningi á erlendu erfðaefni í íslenska mjólkurkúastofninn.

Spurt var; Vilt þú að haldið verði áfram vinnu við að skoða möguleika á innflutningi á erlendu erfðaefni í íslenska mjólkurkúastofninn.

Alls gátu 923 félagsmenn svarað könnuninni.
Alls svöruðu 275 einstaklingar könnuninni (29,8%).

Alls svöruðu 111 einstaklingar „já“ (40,6%).
Alls svöruðu 164 einstaklingar „nei“ (59,6%).

Um leið og stjórn Nautgripabænda þakkar þeim sem gáfu sér tíma til að svara könnuninni kærlega fyrir sitt framlag, lýsir hún yfir gífurlegum vonbrigðum með dræma þátttöku.