Beint í efni

Málþing – Landbúnaður í evrópsku samhengi

11.08.2026

Föstudaginn nk. fer fram málþing á Nordica hótelinu í Reykjavík sem fjallar um landbúnað í evrópsku samhengi. Bændasamtökin buðu þremur reynslumiklum sérfræðingum frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi til að fara með erindi. Markmið málþingsins er að veita dýrmæta innsýn í þeirra reynslu af Evrópumálum og hvernig málaflokkurinn hefur mótað landbúnaðinn í þeirra heimalöndum. Að erindum loknum verða pallborðsumræður þar sem gestir fá tækifæri til að spyrja sérfræðingana spjörunum úr.

Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara. Sjáumst á Nordica hótelinu klukkan 10:00

Málþingið verður sýnt í beinu streymi af YouTube-rás Bændasamtakanna.