Beint í efni

Hvatningarverðlaun skógræktar 2026  

03.06.2026

Hvatningarverðlaun skógræktar 2026  

Hvatningarverðlaun skógræktar 2026 voru afhent við hátíðlega athöfn á Degi skógræktar þann 21. mars síðastliðinn. Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem hafa skarað fram úr í skógrækt og lagt sitt af mörkum til eflingar greinarinnar. 

Að þessu sinni bárust um 50 tilnefningar víðs vegar að af landinu. Að loknu mati voru þrír aðilar valdir áfram í lokaúrslit og gafst almenningi kostur á að kjósa. Alls tóku um 700 manns þátt í kosningunni og var það Björgvin Eggertsson sem hlaut flest atkvæði og stóð uppi sem sigurvegari. 

Björgvin hefur starfað í skógrækt frá árinu 1983 og hefur komið víða við, meðal annars í Suðurlandsskógum og Hekluskógum. Stór hluti starfsferils hans hefur þó tengst fræðslu, en hann hefur kennt við Garðyrkjuskólann á Reykjum í áratugi. 

„Það var aldrei ætlunin hjá mér að fara út í kennslu,“ segir Björgvin, „en þetta hefur reynst afar skemmtileg leið og gefandi.“ Í gegnum kennsluna hefur hann hvatt fjölda skógarbænda og nemenda til að efla þekkingu sína og færni. Hann bendir á að hópurinn sé orðinn sífellt sterkari og að aukin þekkingarsókn nemenda og skógarbænda stuðli að frekari þróun og fagmennsku innan greinarinnar. 

Áherslur í kennslu og starfi Björgvins hafa meðal annars snúið að gróðursetningu, grisjun, meðferð og notkun véla, auk endurmenntunar innan greinarinnar. Þá hefur hann tekið þátt í fjölmörgum erlendum samstarfsverkefnum og fræðsluferðum með skógarbændum, þar sem þekking og reynsla hefur verið sótt til annarra landa. Slík verkefni hafa skilað sér í aukinni þekkingu hérlendis og meðal annars orðið grunnur að útgáfu fræðsluefnis og bóka. 

Björgvin hefur jafnframt verið virkur í félagsmálum skógræktar, meðal annars hjá Skógræktarfélagi Selfoss og Skógræktarfélagi Árnesinga, auk þess að hafa gegnt formennsku í Félagi skógfræðinga. 

Að hans sögn hefur Garðyrkjuskólinn á Reykjum þróast í mikilvæga miðstöð þekkingar í skógrækt á Íslandi. Þar sé einstakt starfsumhverfi og öflugur hópur kennara með mikla reynslu úr faginu. „Þetta er eini skólinn á landinu sem býður upp á þessa fagkennslu,“ segir hann og leggur áherslu á mikilvægi þess að kennarar haldi áfram að starfa í greininni samhliða kennslu til að viðhalda og efla þekkingu. 

Að verðlaununum standa Skógræktarfélag Íslands, Bændasamtök Íslands og Land og skógur. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt og hafa þau fest sig í sessi sem mikilvæg viðurkenning innan íslenskrar skógræktar.