Beint í efni

Halla Sif meðal 100 kvenhetja FAO í landbúnaði og byggðaþróun

20.08.2026

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis, hefur verið valin í hóp 100 kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun.

Tilnefningar bárust frá 131 landi og voru alls nöfn 600 kvenna lögð fram. Halla Sif var tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu, en öllum aðildarríkjum FAO bauðst að senda inn tilnefningar.

Í bréfi frá Qu Dongyu, framkvæmdastjóra FAO, til Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra kemur fram að Halla Sif hafi í störfum sínum sýnt fram á sterka leiðtogahæfileika, frumkvæði og elju við nýsköpun. Þá sé framlag hennar til matvælaframleiðslu og landbúnaðar mikilvægt og hafi haft jákvæð áhrif á lífsskilyrði í dreifbýli.

FAO bendir jafnframt á að árangur Höllu Sifjar endurspegli þau gildi sem stofnunin vill draga fram á Alþjóðaári kvenna í landbúnaði árið 2026. Viðurkenningin undirstriki einnig mikilvægt hlutverk kvenna við uppbyggingu skilvirkari, réttlátari, öflugri og sjálfbærari landbúnaðar og matvælaframleiðslu.

Sérstök athöfn verður haldin í Róm í október á vegum FAO þar sem þær 100 konur sem valdar hafa verið verða heiðraðar fyrir framlag sitt til landbúnaðar og byggðaþróunar.

Bændasamtökin óska Höllu innilega til hamingju með tilnefninguna.