Beint í efni

Google snjallgleraugu fyrir kúabændur!

20.09.2014

Nánast daglega koma fram á sjónarsviðið nýjungar sem gera líf kúabænda auðveldara og eru nýjungarnar vissulega misjafnar eins og gengur. Notkun snjallgleraugna í fjósum er væntanlega ekki eitthvað sem hönnuðir Google voru með í huga þegar þeir hönnuðu þessi hreint ótrúlegu gleraugu en tilfellið er að nú er kominn búnaður fyrir þessi gleraugu sem er sérsniðinn fyrir kúabúskap!

 

Búnaðurinn virkar þannig að bóndanum nægir að horfa á kú í fjósinu og geta gleraugun lesið af eyrnarmerki kýrinnar. Svo getur bóndinn, með auganu, valið ýmsa skráningarþætti í skýrsluhaldi og t.d. lesið hvenær vænta megi beiðsli, síðustu dagsnyt osfrv. Hreint ótrúleg tækni. Búnaðurinn er nú þegar til sölu í Hollandi og hefur stærsta fagblað í kúabúskap þar í landið hvatt bændur til þess að kaupa sér nú þegar Google snjallgleraugu, það sé ekki eftir neinu að bíða. Nú er bara spurningin hvort ekki einhver taki við sér og útbúi sambærilega lausn fyrir okkur hér á Fróni/SS.