
Fullveldisdagurinn í 100. sinn
01.12.2018
Í dag, 1. desember, er fullveldisdagur okkar Íslendinga en eins og margir vita fékk Ísland fullveldi frá Danmörku árið 1918 og í dag eru því liðin 100 ár frá því að Ísland varð fullvalda ríki! Fullveldisdagurinn er einn af opinberum fánadögum lýðveldisins með forsetatilskipun árið 1944.
Um leið og við óskum lesendum naut.is til hamingju með daginn hvetjum að sjálfsögðu alla lesendur, sem ráða yfir fánastöng, til þess að draga fána að húni í dag/SS.