Beint í efni

Fréttabréf október 2025

20.10.2025

 Fréttabréf Skóg-BÍ fyrir október mánuð

Samvinna, samstaða og framtíðarsýn

Októbermánuður hefur einkennst af fundum og mikilvægum samtölum við helstu hagsmunaaðila skógarbænda. Bændasamtökin hafa átt uppbyggileg og gagnleg samtöl við ráðherra, stofnanir og félagasamtök þar sem framtíð skógræktar og landgræðslu hefur verið í brennidepli.

Fundur með umhverfisráðherra

Ég fór ásamt Hilmari og Trausta á fund með umhverfisráðherra þar sem umræðan var bæði góð og áhugaverð. Þar ítrekuðum við mikilvægi þess að allar hliðar landnýtingar haldist í hendur, að skógrækt, landgræðsla og endurheimt votlendis séu samræmdar aðgerðir sem hefjast strax til að ná sem bestum árangri. Það er ljóst að þegar þessir þættir vinna saman skapast raunveruleg áhrif fyrir loftslag, náttúru og samfélag.

Loftslagsvegvísir og einföldun kerfisins

Bændasamtökin vinna nú að loftslagsvegvísi bænda og lausnum sem auðvelda skógarbændum að hefja og stunda nýskógrækt. Það er augljóst að núverandi kerfi vinnur ekki alltaf með skógarbændum, og því leggjum við áherslu á að einfalda ferla, bæði í þágu bænda og stjórnvalda. Því fleiri skógar sem eru plantaðir, því meiri verður kolefnisbindingin og það er bæði þjóðhagslega og umhverfislega hagkvæmt.

Skógarbændur eru öflug heild og geta sparað stjórnvöldum verulegar fjárhæðir með því að fá eflingu frekar en að ríkið greiði háar upphæðir í kolefnisskuldir árið 2030.

Umsögn um reglugerð hvata og stuðningsverkefna

Vinna er í gangi við umsögn um reglugerð hvata og stuðningsverkefna í landgræðslu og skógrækt. Það er mjög mikilvægt að skógarbændur láti rödd sína heyrast í þessu máli, þetta snertir starf okkar allra. Umsögnin verður send inn á samráðsgátt í byrjun nóvember.

Umsögn um reglugerð hvata og stuðningsverkefna

Um miðjan mánuð áttu Bændasamtökin ásamt formanni góðan fund með fulltrúum Skógræktarfélags Íslands. Þar var tekin ákvörðun um að stofna samráðshóp sem mun vinna að sameiginlegum hagsmunum skógarbænda og skógræktarfólks. Markmiðið er að samræma málflutning okkar þannig að stjórnvöld taki ábendingum okkar alvarlega. Þegar við tölum með einni rödd aukast líkur á raunverulegum árangri. Á fundinum var einnig rætt um mikilvægi þess að við lítum fram á veginn og viðhöldum jákvæðri umræðu um skógrækt, hún er grundvallaratriði fyrir framtíð Íslands.

Undirbúningur fyrir búvörusamninga

Hafinn er undirbúningur fyrir búvörusamningana og lögð er þar áhersla á að skógarbændur njóti sömu réttindi til beingreiðslna og aðrar búgreinar. Í þessari vinnu erum við að skilgreina markmið skógargeirans og undirstrika mikilvægi starfseminnar, ekki aðeins vegna kolefnisbindingar, heldur einnig vegna verðmætra afurða og sjálfbærni íslensks landbúnaðar.

Eitt af stærstu markmiðunum er að tryggja fjármagn til umhirðu og grisjunar skóga, því án þess verður ekki hægt að tryggja gæði og nýtingu afurða til framtíðar. Við leggjum því til að skógarbændur á lögbýlum fái beingreiðslur fyrir þá vinnu sem fer í umhirðu og grisjun. Vinnan er vel á veg komin.

Samstaða skapar árangur

Það hefur sjaldan verið mikilvægara en nú að skógarbændur standi saman. Þegar við tölum með einni rödd og vinnum saman að sameiginlegum markmiðum, þá verður rödd okkar sterkari, áhrifameiri og líklegri til að ná fram raunverulegum breytingum.

Skógrækt er framtíðin, fyrir loftslag, náttúru og byggðir landsins.

Með kveðju

Sólrún Þórðardóttir