
Fréttabréf nóvember 2025
20.11.2025
Fréttabréf Nóvember mánaðar
Fundur með Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Nóvembermánuður hefur verið viðburðaríkur og árangursríkur hjá okkur í deild skógarbænda hjá Bændasamtökum Íslands. Í byrjun mánaðarins héldum við fund með Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem við kynntum okkar verkefni og hugmyndir um hvernig hægt væri að einfalda verkferla og gera umsóknarferlið bæði skilvirkara og fljótlegra. Fundurinn gekk mjög vel og skapaði góða umræðu um næstu skref. Áframhaldandi vinna felur í sér fundi með Skipulagsstofnun og Land og Skógi, auk kynninga fyrir nýjar sveitarstjórnir í vor.
Reglugerðarvinna og umsagnir
Við höfum einnig lagt áherslu á reglugerðarvinnu og sendum inn umsögn til Samráðsgáttar um drög að reglugerð um hvata og stuðningsverkefni fyrir landgræðslu og skógrækt. Á sama tíma hefur mikil vinna farið fram í samstarfi við NSF og CEPF, þar á meðal þátttaka í fundi með Evrópuráðinu um reglugerðir tengdar skógrækt. Þetta samstarf styrkir stöðu okkar í alþjóðlegu samhengi og tryggir að sjónarmið skógarbænda fái að heyrast.
Aukadeildarfundur og samstaða innan deildarinnar
Í miðjum mánuði var haldinn opinn aukadeildarfundur þar sem samþykktir brúgreindadeildar skógarbænda Bændasamtaka Íslands var yfirfarin og samþykkt. Á fundinum var einnig farið yfir kynningu sem við sýndum á fundi með Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn gekk vel og markaði mikilvægt skref í samstöðu innan deildarinnar.
Búvörusamningar – frestun og framtíðarsýn
Fréttir bárust í byrjun mánaðarins um að búvörusamningum verði frestað um eitt ár. Við teljum það jákvætt, þar sem það gefur okkur lengri tíma til að vinna vel að þessum samningum. Langtímamarkmið okkar er að móta skýra framtíðarsýn fyrir skógrækt og stuðning til næstu ára, en skammtímamarkmiðin snúa að þeirri vinnu sem nú er í gangi með Land og Skógi, Skipulagsstofnun og fleiri aðilum. Á næstu vikum verður settur af stað vinnuhópur fyrir búvörusamninga, þar sem bæði núverandi og komandi kynslóðir skógarbænda munu taka þátt. Það er mikilvægt að heyra sjónarmið allra við gerð samninganna.
Fagráðstefna skógræktar – dagsetning og þema
Undirbúningur fyrir Fagráðstefnu skógræktar er einnig hafinn. Ráðstefnan verður haldin 18.–19. Mars 2026 á Hellu og ber heitið „Lífið í skóginum“. Þemað lofar spennandi umræðum og fróðleik.
Fundarstarf og samstaða landshlutafélaga
Fundarstarfið hefur gengið vel í nóvember, og við höfum haldið mánaðarlega fundi með formönnum landshlutafélaga. Það er alltaf ánægjulegt að heyra hvað félögin hafa fyrir stafni og við teljum að samstaða innan skógarbænda sé lykillinn að auknum áhrifum innan Bændasamtakanna og út á við.
Gæðaviðmið og ráðgjöf
Í júní gaf Land og Skógi út gæðaviðmið um val á landi til skógræktar. Þó margt gott sé að finna í þeim viðmiðum, er einnig atriði sem mætti bæta. Því höfum við boðað fund, þann 15. desember á Teams, þar verður farið yfir athugasemdir. Hvetjum við ykkur að lesa viðmiðin og taka þátt í umræðunni þann 15 desember. Í framhaldi af þessum fundi munum við leitast eftir að eiga fund með formanni nefndarinnar sem sá um að gera gæðaviðmiðin. Að auki áttum við fund með Land og Skógi um heildstæða ráðgjöf, var sá fundur mjög áhugaverður og teljum við að ef þessi vinna kemst áfram og raungerist þá gæti hún haft mjög jákvæð áhrif á þjónustu við skógarbændur.
Framtíðin er björt fyrir skógarbændur. Með samstöðu, skýrri stefnu og virku samstarfi munum við ná langtímamarkmiðum okkar og tryggja að skógrækt verði sterk stoð í íslenskum landbúnaði.
Með kveðju
Sólrún Þórðardóttir