
Fréttabréf maí 2026
30.05.2026
Fréttabréf Skóg-BÍ – Maí 2026
Kæru skógarbændur,
Maí mánuður hefur verið bæði viðburðaríkur og gefandi í starfi og það er ótrúlega mikilvægt að fá að miðla til ykkar því sem er að gerast ekki bara verkefnunum sjálfum, heldur einnig þeirri vinnu sem fer fram á bak við tjöldin.
Á þessu tímabili hef ég tekið þátt í fjölmörgum fundum og samtölum, bæði innanlands og erlendis, þar sem markmiðið er alltaf það sama: að tryggja að rödd íslenskra skógarbænda heyrist og að okkar raunveruleiki sé hluti af stærri ákvörðunum sem teknar eru.
Í norrænu samstarfi, meðal annars innan NSF, hefur verið unnið markvisst að því að móta sameiginlega afstöðu gagnvart loftslagsstefnu Evrópusambandsins eftir 2030. Þessi vinna skiptir miklu máli fyrir okkur, því þó Ísland sé utan ESB hafa ákvarðanir innan sambandsins bein áhrif á regluverk, markaði og þróun í skógrækt. Þar leggjum við áherslu á að reglur verði raunhæfar, sanngjarnar og taki mið af þeim aðstæðum sem eru í skógrækt hér á Norðurlöndum.
Einnig hefur verið unnið að svörum við opnu samráði ESB um svokallað „stress test“ á fugla- og búsvæðatilskipunum. Það er mikilvægt að við komum okkar sjónarmiðum skýrt á framfæri, sérstaklega þegar kemur að samspili verndar og nýtingar og því hvernig hægt er að byggja upp sjálfbæra skógrækt sem nýtist bæði samfélagi og náttúru.
Innanlands hefur samstarf verið öflugt. Fundir með Landi og skógi (LOGS) hafa gengið vel og er vilji til áframhaldandi samvinnu mjög skýr. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað sameiginlegur skilningur er að myndast um mikilvægi þess að vinna saman milli stofnana, bænda og annarra hagaðila til að ná sem bestum árangri. Slíkt samstarf er lykillinn að því að við getum þróað greinina áfram á skynsamlegan og traustan hátt.
Ein áhugaverðasta umræða mánaðarins tengdist tegundavali í skógrækt. Þar kom skýrt fram hversu mikilvægt er að horfa heildrænt á málið. Engin ein lausn hentar öllum sviðum skógræktar. Það sem virkar vel í nytjaskógrækt þarf ekki endilega að henta í skjólbeltum eða yndisskógrækt og því er nauðsynlegt að hafa svigrúm, þekkingu og samráð í forgrunni. Rétt land, rétt tré og rétt nálgun er lykillinn að góðum árangri.
Áfram hefur verið unnið að þróun Kolefnisbrúarinnar, sem er verkefni sem ég veit að margir ykkar fylgjast grannt með. Þar er markmiðið að skapa skýrari og traustari ramma utan um kolefnisverkefni, svo skógarbændur geti tekið þátt á markaði með auknum öryggi og sýn. Þessi vinna er flókin en gengur vel, og verður áfram í forgangi á næstu mánuðum.
Jafnframt er unnið að því að efla miðlun og sýnileika skógarbænda. Við erum að uppfæra efni á vefnum og halda úti reglulegri viðveru á samfélagsmiðlum. Það skiptir meira máli en oft er gert sér grein fyrir að sýna hvað er að gerast, deila þekkingu og halda tengingu á milli okkar allra.
Framundan er svo líflegt sumar með fjölbreytta viðburði víða um land aðalfundir, göngur og samkomur sem gefa okkur tækifæri til að hittast, ræða málin og styrkja tengslin. Ég vil sérstaklega hvetja ykkur til að taka þátt þegar færi gefst, það er ómetanlegt að hitta aðra skógarbændur, deila reynslu og fá nýja sýn (sjá dagskrá fyrir júní neðst, einnig hægt að sjá á viðburðardaga tali og í fréttum inná bondi.is).
Að lokum vil ég segja þetta:
Starf skógarbænda er langtímaverkefni. Það krefst þolinmæði, þekkingar og trúar á framtíðina. En það er líka einn mikilvægasti þáttur í því að byggja upp sjálfbært land bæði fyrir okkur og komandi kynslóðir.
Þið eruð að gera gríðarlega mikilvægt starf!
Með bestu kveðju,
Sólrún
Viðburðir í Júní