Beint í efni

Fréttabréf júní 2026

29.06.2026

Fréttabréf Skóg-BÍ – júní 2026

Kæru skógarbændur, 

Júnímánuður hefur verið viðburðaríkur hjá Skóg-BÍ. Við höfum átt fundi með stjórnvöldum, heimsótt skógarbændur víða um land, tekið þátt í evrópsku samstarfi og unnið áfram að mikilvægum verkefnum sem snerta framtíð skógræktar og afkomu skógarbænda.  

Það sem stendur upp úr eftir mánuðinn er hversu mikill kraftur og metnaður er hjá skógarbændum um allt land. Á sama tíma heyrum við skýr skilaboð um að ýmislegt í kerfinu mætti ganga betur; umsóknarferlar eru oft flóknir, leyfisveitingar geta tekið langan tíma og reglur eru stundum ekki sniðnar að raunveruleika skógræktar. Þess vegna skiptir öflug hagsmunagæsla meira máli en nokkru sinni fyrr. 

Kílómetragjaldið  

Í júní átti Bændasamtök Íslands fund með Skattinum vegna þeirra vandamála sem komið hafa upp í tengslum við kílómetragjaldið. Dæmi eru um að bændur hafi fengið rukkanir þrátt fyrir að eiga að vera undanþegnir gjaldinu og jafnframt falla skógarbændur ekki undir núverandi undanþágur. Unnið var að formlegu erindi sem sent var til Skattsins um miðjan mánuð.  

Þetta er gott dæmi um hvers vegna mikilvægt er að skógarbændur hafi sterka rödd innan Bændasamtaka Íslands. Þegar reglur eru settar eða breytt þarf einhver að fylgjast með áhrifunum á skógarbændur og knýja á um úrbætur þegar þörf krefur. 

Frakkland og Evrópusamstarfið 

Dagana 15.–18. júní sóttu fulltrúar Skóg-BÍ aðalfund CEPF í Frakklandi. Þar kom skýrt fram að margar af þeim áskorunum sem íslenskir skógarbændur standa frammi fyrir eru einnig til staðar annars staðar í Evrópu. 

Fundurinn gaf mikilvæga innsýn í hvernig önnur lönd vinna að framþróun skógræktar, stuðningskerfum, loftslagsmálum og hagsmunagæslu bænda. Ekki síður voru mynduð verðmæt tengsl sem geta nýst íslenskum skógarbændum til framtíðar.  

Skógarferð félag skógarbænda á Vesturlandi 

Þann 23. júní bauð Félag skógarbænda á Vesturlandi formanni og tengilið Skóg-BÍ að taka þátt í skógargöngu með félagsmönnum á Vesturlandi. Ferðin hófst á Tungulæk þar sem landeigendur kynntu skógrækt sína, fóru yfir árangur síðustu ára og sögðu frá framtíðaráformum á jörðinni. Þaðan var haldið að landi Litlu-Brekku þar sem hópurinn gekk um einstaklega fallegan furuskóg og naut þess að skoða ræktunina og ræða skógrækt við aðra þátttakendur. 

Að göngunni lokinni var komið saman í fallegum lundi þar sem búið var að koma fyrir sætum og boðið upp á veitingar. Þar myndaðist notaleg stemning þegar gítarinn var tekinn fram og sungin voru nokkur lög. Góðar umræður sköpuðust um skógrækt, framtíð greinarinnar og reynslu skógarbænda víðs vegar af Vesturlandi. Dagurinn var afar vel heppnaður og sýndi vel þann félagsanda og samstöðu sem einkennir starf skógarbænda. 

Heimsóknir til skógarbænda á Vestfjörðum 

Eitt af því sem gefur starfi Skóg-BÍ mest gildi er að hitta skógarbændur á þeirra eigin heimavelli. 

Í lok júní var farið í ferð um Vestfirði þar sem heimsóttir voru fjórir skógarbændur og ræktunarsvæði þeirra skoðuð. Ferðin staðfesti það sem margir vita af reynslu: rétt landval skiptir gríðarlegu máli. Á sumum stöðum var allt að tveggja metra munur á vexti jafn gamalla trjáa eftir því hvort þau stóðu á góðu ræktunarlandi eða á melum og móum.  

Einnig var sóttur aðalfundur Félags skógarbænda á Vestfjörðum þar sem fjölmörg mikilvæg mál voru rædd. Þar komu fram margar spurningar um félagsaðild að Bændasamtökum Íslands og hlutverk samtakanna gagnvart skógarbændum.  

Af hverju að vera í Bændasamtökum Íslands? 

Þetta er spurning sem við heyrum oft. 

Skógræktarfélög og landshlutafélög gegna mikilvægu hlutverki við fræðslu, félagsstarf og tengslamyndun. Bændasamtök Íslands sinna hins vegar hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum, Alþingi, stofnunum og öðrum þeim aðilum sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif á rekstrarumhverfi bænda. 

Sem félagsmaður í BÍ færð þú: 

  •  Rödd í sameiginlegri hagsmunagæslu landbúnaðarins. 
  •  Aðkomu að vinnu sem snýr að styrkjakerfum, regluverki og skattamálum. 
  • Aðgang að sérfræðikunnáttu og stuðningi í málum sem snerta skógrækt.  
  • Sterkara bakland þegar tekist er á við áskoranir sem snerta skógarbændur sérstaklega. 
  • Tækifæri til að hafa áhrif á framtíð skógræktar innan íslensks landbúnaðar. 

Því fleiri skógarbændur sem taka þátt, því sterkari verður rödd skógræktarinnar innan Bændasamtaka Íslands. 

Unnið að framtíðarlausnum fyrir skógarbændur 

Áfram hefur verið unnið með LOGS að verkefni sem miðar að því að bæta fyrirkomulag greiðslna til skógarbænda og gera kerfið skilvirkara og einfaldara. Vonast er til að hægt verði að kynna tillögur fyrir ráðherra eftir sumarfrí.  

Samhliða því heldur vinna áfram við Kolefnisbrúna þar sem verið er að þróa viðskipta- og rekstrarmódel sem geta skapað ný tækifæri fyrir skógarbændur í kolefnisbindingu og loftslagsverkefnum.  

Horft til haustsins 

Undirbúningur er hafinn fyrir Fagráðstefnu skógræktar 2027 sem verður haldin á Vesturlandi. Þá eru einnig á döfinni ferðir Skóg-BÍ um landið í ágúst og áframhaldandi fundir með landshlutafélögum þar sem við viljum heyra frá sem flestum skógarbændum.  

Skógræktin verður sterkari þegar við stöndum saman 

Á næstu árum verða teknar margar mikilvægar ákvarðanir um landnýtingu, kolefnisbindingu, stuðningskerfi og regluverk sem munu hafa áhrif á starfsskilyrði skógarbænda. 

Þess vegna skiptir máli að skógarbændur séu sýnilegir, virkir og fjölmennir innan Bændasamtaka Íslands. 

Við hvetjum alla skógarbændur sem ekki eru þegar félagsmenn til að kynna sér aðild og taka þátt í að móta framtíð íslenskrar skógræktar. 

Saman gerum við rödd skógarbænda sterkari. 🌲🌲🌲 

Með sumarkveðju  

Sólrún Þórðardóttir