Beint í efni

Fréttabréf ágúst 2026

29.07.2026

Skóg-BÍ fréttabréf Ágúst mánaðar 

Kæru skógarbændur, 

Ágúst hefur verið einstaklega viðburðaríkur mánuður og sýndi fram á hvað er það sem skiptir mestu máli í starfi Skóg-BÍ; fólkið, skógarnir og samstarfið sem byggir upp íslenska skógrækt til framtíðar. 

Mánuðurinn hófst með ferðalagi um Norðurland þar sem ég og Hrönn formaður Skóg-BÍ heimsóttum fjölda skógarbænda og fengum að kynnast starfsemi þeirra af eigin raun. Sérstaklega var áhugavert að heimsækja bú þar sem stundaður er blandaður búrekstur með bæði búfé og skógrækt. Slíkar heimsóknir eru ómetanlegar því þær sýna fram á hversu fjölbreytt umhverfi skógarbænda er og hversu vel skógrækt getur fallið að annarri landnýtingu. 

Við gengum um skóga sem eigendur hafa ræktað af mikilli alúð, kynntum okkur árangur þeirra og ræddum þær áskoranir og tækifæri sem fylgja því að vera skógarbóndi á Íslandi. Það er alltaf jafn ánægjulegt að heyra sögurnar á bak við skógana og sjá með eigin augum hvernig framtíðarsýn og þrautseigja skilar sér í vaxandi verðmætum til langs tíma. 

Við fórum einnig á aðalfund Félags skógarbænda á Norðurlandi þar sem við kynntum starfsemi Skóg-BÍ og sátum fyrir svörum. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá góða þátttöku og mikinn áhuga fundargesta. Slíkir fundir minna okkur á að styrkur félagsins liggur í öflugu félagsstarfi og virku samtali við félagsmenn um allt land

Um miðjan mánuðinn fengum við góða heimsókn frá Brussel þegar tengiliður okkar hjá CEPF, samtökum evrópskra skógarbænda, og NSF, samtökum norrænna skógarbænda, heimsótti Ísland. Hann fór yfir starfsemi samtakanna og hvernig þau vinna að hagsmunagæslu skógarbænda á alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal fyrir íslenska skógarbændur. Mikilvægt er að við séum hluti af þessari samvinnu því margar af þeim ákvörðunum sem hafa áhrif á greininna eiga sér upphaf utan landsteinanna. 

Samhliða heimsókninni fórum við í vettvangsferðir þar sem við heimsóttum meðal annars Skógræktarfélag Íslands á nýjum starfsvettvangi þess á Mógilsá. Þar áttu sér stað áhugaverðar umræður um stöðu greinarinnar og framtíðarsýn hennar. Slíkar heimsóknir sýna hversu mikilvægt það er að skógarbændur, skógræktarfélög og aðrir aðilar innan greinarinnar vinni saman. Þótt hlutverk okkar séu ólík eigum við sameiginlegt markmið: að efla íslenska skógrækt og tryggja henni farsæla framtíð. 

Við heimsóttum einnig Skógræktarfélag Reykjavíkur þar sem unnið er afar metnaðarfullt starf. Það var virkilega magnað að sjá hversu fjölbreytt verkefni eru í gangi hjá þeim og hversu miklu er hægt að áorka með markvissri uppbyggingu og framtíðarsýn. 

Að lokum heimsóttum við skógrækt Aðalsteins í Ölfusi. Sú heimsókn var eftirminnileg á margan hátt. Þar gaf að líta fjölbreyttar trjátegundir, faglega umhirðu og glæsilegan árangur margra ára vinnu. Slíkt minnir okkur á hversu mikla möguleika íslensk skógrækt hefur þegar þekking, þolinmæði og eldmóður fara saman. 

Á skrifstofunni hefur jafnframt verið unnið áfram af krafti að þróun Kolefnisbrúarinnar. Verkefnið hefur verið umfangsmikið en við bindum vonir við að með haustinu verði það komið á það stig að hægt verði að taka næstu skref í framkvæmd. Markmiðið er áfram að skapa raunhæf tækifæri fyrir skógarbændur og styrkja stöðu þeirra í kolefnisverkefnum framtíðarinnar. 

Þá höldum við einnig áfram góðu samstarfi við LOGS þar sem horft er til nýrra leiða til verðmætasköpunar og tekjuöflunar fyrir skógarbændur. Slík verkefni eru mikilvæg því þau snúast um að skapa fleiri möguleika og efla rekstrargrundvöll skógarbýla til framtíðar. 

Að lokum vil ég hvetja alla skógarbændur til að fylgjast með starfi félagsins og taka virkan þátt í því. Starf Skóg-BÍ verður ekki öflugra en þátttaka félagsmanna gerir það að verkum. Hvort sem það er með því að mæta á fundi, taka þátt í verkefnum, deila reynslu eða koma hugmyndum á framfæri skiptir framlag hvers og eins máli. 

Munið einnig að fylgjast með okkur á skogarbondi.is, þar sem finna má öll útgefin fréttabréf, fréttir af verkefnum félagsins og ýmsar gagnlegar upplýsingar. Einnig hvetjum við ykkur til að fylgja okkur á Facebook og Instagram þar sem við deilum reglulega fréttum úr starfinu og sýnum frá því fjölbreytta og mikilvæga starfi sem skógarbændur um allt land vinna á hverjum degi. 

Saman byggjum við upp öflugt samfélag skógarbænda og tryggjum að rödd þeirra heyrist, bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi. 

Bestu kveðjur, 
Sólrún Þórðardóttir 

Tengiliður Skóg-BÍ