
Fjárfestingastuðningur í sauðfjár- og nautgriparækt
24.02.2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022, V. kafla.
Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 15. mars.
Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.
Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:
- Nýframkvæmda
- Endurbóta á eldri byggingum
Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt nr. 348/2022, VIII. kafla.
Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 31. mars.
Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa.
Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:
- Nýframkvæmda
- Endurbóta á eldri byggingum