
Er ný tegund af geymsluþolinni mjólk á leiðinni?
15.06.2019
Fyrirtækið Naturo, sem er með höfuðstöðvar í Ástralíu, hefur nú sent frá sér tilkynningu og sagt að vísindafólk á vegum fyrirtækisins hafi fundið upp nýja tegund af gerilsneyðingu sem Naturo segir að muni gjörbreyta mjólkurvörumarkaðinum! Að þeirra sögn er þessi nýja aðferð stærsta uppgötvunin í heiminum á sviði afurðasvinnslu mjólkur síðan hin hefðbundna gerilsneyðing var fundin upp árið 1864!
Naturo hefur þegar tryggt sér einkaleyfi á þessari aðferð sinni, en með henni er hægt að halda hefðbundinni drykkjarmjólk ferskri í 60 daga. Mjólkin er sögð halda sínu ferska bragði og fær því ekki hið sæta bragð sem G-mjólk er með. Ekki nóg með það að Naturo segi að mjólkin geti haldist fersk í 60 daga, þá fullyrða forsvarsmenn fyrirtækisins að mjólkin innihaldi einnig meira af nauðsynlegum vítamínum en hefðbundin gerilsneydd mjólk, en við hefðbundna gerilsneyðingu sundrast alltaf ákveðin efni.
Ef þetta reynist tilfellið, er vissulega um ótrúlega nýjung að ræða sem gæti gjörbreytt viðskiptum með ferska mjólk í heiminum sem nú er þá hægt að flytja með skipum í stað flugs eða lestum. Enn sem komið er, er þessi vinnsla þó bara á tilraunastigi og næsta skref er að byggja litla afurðastöð sem getur unnið úr 10 milljón lítrum á ári/SS.