Beint í efni

Derhúfur úr sömu sveit til sölu

18.08.2026

Hér er hægt að panta derhúfurnar sem tákna samstöðu um að sveitir landsins skipta okkur máli og landbúnaðarframleiðsla er okkur dýrmæt. Engu máli skiptir hvar á landinu við búum, hvaða skoðanir við höfum eða hvaða ár við erum fædd. Í grunninn erum við öll úr sömu sveit og okkur þykir vænt um fólkið sem framleiðir matinn okkar.

Hægt er að panta sér derhúfu í gegnum sölusíðuna hér að neðan. Lagerinn er takmarkaður á meðan beðið er eftir fleiri húfum.