
Deildarfundur Hrossabænda 2026
13.02.2026
Deildarfundur hrossabænda BÍ verður haldinn þriðjudaginn, 24. mars nk. á Hotel Reykjavik Natura sem hluti af Búnaðarþingi, en á Búnaðarþingi 2025 var samþykkt að í ár (2026) fari Búnaðarþing og deildarfundir búgreina fram samhliða í einum þriggja daga viðburði.
Hefur þú áhuga á að sitja deildarfund hrossabænda?
Félagsmenn sem hyggjast sitja deildarfund Hrossabænda sem fulltrúar þurfa að skrá sig á fundinn. Skráning fer fram í gegnum rafrænt form sem finna má hér.
Skráningarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi næstkomandi mánudags, 16. febrúar 2026
Kjörgengi miðast við 19. janúar sl., en einungis fullgildir félagsmenn (þeir sem voru skráðir og höfðu greitt félagsgjöld þann dag) geta skráð sig á fundinn.
Frestur til að skila inn tillögum sem taka á fyrir á deildarfundunum rann út 9. febrúar sl.
Búnaðarþing 2026
Samkvæmt nýsamþykktum samþykktum deildar hrossabænda er það í höndum stjórnar deildar hrossabænda að ákveða hvernig Búnaðarþingsfulltrúar deildar hrossabænda eru skipaðir. Einungis fulltrúar sem skráðir eru á deildarfund hrossabænda ásamt stjórn deildarinnar eru þó gjaldgengir.
Í ljósi þess bendum við félagsmönnum á, að hafi þeir hug á því að sitja Búnaðarþing sem fulltrúi fyrir deild hrossabænda þurfa þeir að vera skráðir á deildarfund hrossabænda, en sá skráningarfrestur rennur út um hádegi á mánudag, sbr. hér að ofan.
Hvetjum við hrossabændur til að láta sig málefni hrossabænda varða og hafa áhrif á verkefni deildarinnar næsta árið með því að skrá sig sem fulltrúa og taka þátt í deildarfundi hrossabænda!