Arla Foods markaðssetur drykkjarmjólk úr kúm sem haldið er til beitar
07.05.2009
Í þessari viku setur Arla Foods á markað í Danmörku ný- og léttmjólk undir merkinu Arla Lærkevang®, en mjólkin kemur frá búum þar sem kúnum er haldið til beitar á sumrin og grös eru hátt hlutfall vetrarfóðurs, að lágmarki 25%. Nú er svo komið að minna en helmingi danskra mjólkurkúa er beitt á sumrin en fyrir 5 árum viðhöfðu 3 af hverjum 4 búum sumarbeit.
263 bú leggja Arla til mjólkina, hún er sótt á hverri nóttu, pakkað og er komin í verslanir að morgni. Lærkevang vörumerkið kemur í staðinn fyrir Arla Ekspres mjólkina og er seld á sama verði. Undirritaður var nýlega á ferð í Danmörku og þá var líterinn af Ekspres mjólk seldur á 8,50 DKK í Føtex, á gengi dagsins eru það 194 kr/ltr.
Hér á landi viðhafa nær öll kúabú sumarbeit og hlutfall grasa í fóðri mjólkurkúnna er á bilinu 50-80%.