Bændavaktin
Búnaðarþing er haldið 23.-25. mars á Hótel Reykjavík Natura. Á Bændavaktinni er beint fréttastreymi frá þinginu en fréttir eru uppfærðar reglulega eftir þróun mála. Við hlökkum til að veita ykkur innsýn í þessi mikilvægu störf í félagskerfi bænda.

15:40
Þriggja daga vakt að enda komin
Þá er þessari glæsilegu þriggja daga Bændavakt lokið og þökkum við starfsfólk Bændasamtakanna fyrir það.
15:00
Bændablaðið er komið í hús
Brakandi ferskt páskablað Bændablaðsins er komið úr pressunum. Þröstur Helgaston, ritstjóri og Ástvaldur Lárusson blaðamaður komu með væna sendingu til okkar á þinginu.
Páskablaðið er glæsilegt og efnismikið blað sem inniheldur meðal annars fréttir af deildafundum búgreina sem fóru fram í gær.
14:45
Þingi slitið
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, þakkar fyrir vel unnin störf þingfulltrúa síðustu þrjá daga og slítur Búnaðarþingi.
14:30
Herdísi Mögnu þakkað fyrir sín störf í þágu bænda
Herdís gaf ekki kost á sér í stjórn að þessu sinni en hún hefur sinnt störfum í bændapólitík í áraraðir og látið gott af sér leiða. Þá þakkaði Sigurbjörg Ottesen henni sérstaklega fyrir hvatningu og innblástur sem hún hefur fengið frá Herdísi í gegnum tíðina og vakti athygli á þeirri fyrirmynd sem Herdís hefur verið fyrir konur í landbúnaði.
14:30

Ný stjórn Bændasamtakanna staðfest
Búið er að kjósa í stjórn og varastjórn Bændasamtaka Íslands.
Stjórn:
Trausti Hjálmarsson (formaður)
Steinþór Logi Arnarsson
Reynir Þór Jónsson
Sigurbjörg Ottesen
Axel Sæland
Petrína Þórunn Jónsdóttir
Oddný Anna Björnsdóttir
Varastjórn:
1. varamaður Eyjólfur Ingvi Bjarnason
2. varamaður Sigrún Hanna Sigurðardóttir
3. varamaður Jón Helgi Helgason
4. varamaður Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
5. varamaður Sveinn Þ. Finster Úlfarsson
14:00
Önnur mál og kosning
Mikil og góð umræða skapaðist um önnur mál en þau hafa nú öll verið afgreidd. Næsta mál er þá kosning í stjórn og varastjórn Bændasamtakanna.
13:30
Afgreiðsla mála lokið
Nú er búið að afgreiða öll mál á dagskrá og höldum við næst í dagskrárliðinn önnur mál.
11:30
Kynning á tillögum fjárhagsnefndar
11:00
Kynning á frambjóðendum
Nú fá frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar BÍ tækifæri til að kynna sig fyrir þingfulltrúum. Kosið verður til stjórnar og varastjórnar seinna í dag.
10:40
Allsherjarnefnd
Oddný Anna Björnsdóttir kynnir tillögur Allsherjarnefndar.
10:30
Uppstillingarnefnd
Einar Ófeigur á Lóni lýkur máli sínu fyrir hönd uppstillingarnefndar.
10:00
Kaffihlé
Tíukaffið er ekki af verri endanum í dag. Hressandi og ferskar veitingar fyrir duglega fulltrúa á boðstólnum, gott að fá nóg af næringu eftir gærkvöldið.
9:00
Umhverfisnefnd
Sigurður Trausti Karvelsson, formaður umhverfisnefndar er fulltrúi landeldisdeildar og starfar sem verkefnastjóri rannsókna og þróunar hjá First Water.
8:30
Starfsskilyrði landbúnaðarins
Arnar Árnason, eggja- og kúabóndi í Eyjafirði, kynnir tillögur nefndarinnar um starfsskilyrði í landbúnaði
8:00
Búnaðarþing hefur göngu sína
Eftir gott kvöld í frábærum félagsskap þar sem hlátur, matur og tónlist voru í aðalhlutverki er alvaran tekin við. Þingfulltrúar týnast í salinn með bros á vör og undirbúa sig fyrir langan dag í stóra salnum.
Á dagskrá eru tillögur sem nefndir hafa unnið í aðdraganda þingsins, kynning á frambjóðendum til stjórnar og varastjórnar BÍ, kosningar og önnur mál.
Við byrjum Félagsnefnd. Jón Bjarnason, kúa- og sauðfjárbóndi, er formaður nefndarinnar og sést á myndinni uppi í pontu.
18:00
Deildafundum formlega lokið
Deild hrossabænda hefur klárað sinn deildarfund og þar með eru allar búgreinar búnar að afgreiða sín mál og klára sína dagskrá. Þá er ekkert eftir en að halda í fordrykkinn sem er í boði RML og láta sig hlakka til morgundagsins.
17:00
Allar deildir búnar nema ein
Þá eru allar deildir búnar með sína fundi - fyrir utan deild hrossabænda. Þar eru umræður enn í fullu fjöri en afgreiðsla mála gengur vel. Við setjum inn fréttir af fundinum um leið og þær berast.
16:30
Hátíðarkvöldverður og fordrykkur
Nú er farið að síga á seinni hlutann hjá okkur og styttist í dagskrá kvöldsins. Klukkan 18 býður Ráðgjafamiðstöðin í fordrykk fyrir framan veislusalinn áður en borðhald hefst klukkan 19. Hótel starfsfólk vinnur hörðum höndum að undirbúningi fyrir kvöldið og stefnir það í mikla veislu.
15:00
Ný stjórn hjá deild loðdýrabænda
Deild loðdýrabænda er búin með sinn fund og voru gerð stjórnarskipti. Þá fékk fráfarandi stjórn blómvendi og þakkir fyrir góð störf í þágu bænda.
14:45

Ný stjórn hjá deild nautgripabænda
14:30
Stjórn og varastjórn sauðfjárbænda 2026. Frá vinstri: Sveinn Úlfarsson (varastjórn), Eyjólfur Ingvi Bjarnason (formaður), Ásta Fönn Flosadóttir (meðstjórnandi), Birgir Haraldsson (meðstjórnandi), Þuríður Lillý Sigurðardóttir (meðstjórnandi- ný), Sigríður Ólafsdóttir (varastjórn) og Þórarinn Óli Rafnsson (varastjórn). Á myndina vantar Sigurborgu Hönnu Sigurðardóttir en hún var endurkjörin sem meðstjórnandi í stjórn.
Ný stjórn hjá deild sauðfjárbænda
Deild sauðfjárbænda hefur klárað sinn deildarfund sem hófst í gær og var haldið áfram í morgun. Samtals voru fluttar 149 ræður og kosið var í nýja stjórn sauðfjárbænda.
14:10
Magnús Helgi Loftsson hættir í stjórn deildar sauðfjárbænda
Eyjólfur Ingvi Bjarnason þakkar Magnúsi Helga Loftsyni fyrir góð störf síðustu tvö ár í stjórn sauðfjárbænda
14:00
Formannaskipti hjá nautgripabændum
Sigurbjörg Ottesen er nýr formaður nautgripabænda. Rafn Bergsson, formaður deildarinnar sl. 3 ár, hélt þakkarræðu og þakkaði samstarf síðustu árin en hann hefur setið í stjórn nautgripabænda frá upphafi en áður sat hann í stjórn LK og hefur sinnt félagsstarfi nautgripabænda í 8 ár.
Sigurbjörg afhendi Rafni blómvönd eins og hefð er fyrir.
Sigurbjörg er nautgripabóndi á Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshrepp. Sigurbjörg var kosin í stjórn LK árið 2020 og hefur setið í stjórn deildar nautgripabænda BÍ síðan gömlu búgreinafélögin sameinuðust undir Bændasamtökin. Síðastliðin tvö ár hefur hún setið sem varaformaður nautgripabænda á sama tíma og hún hefur setið í stjórn Bændasamtaka Íslands.
13:20
Ný stjórn skógarbænda
Skógarbændur hafa lokið sínum deildarfundi og kosið sér nýja stjórn. Skógarbændur eru samstíga og afgreiddar voru fimm tillögur, þar á meðal var tillaga um að skógrækt á lögbýlum verði skilgreind sem landbúnaður. Einnig er stefnt að því að fjölga félagsmönnum í deildinni.
Ný stjórn er skipuð svona:
Hrönn Guðmundsdóttir (formaður)
Lilja Sigurðardóttir
Sæmundur Þorvaldsson
Sigurkarl Stefánsson
Embla Björnsdóttir
Varastjórn:
Sighvatur Þórarinsson
Bergþóra Jónsdóttir
Birgir Steingrímsson
Helgi Bragason
Kári Steinn Karlsson
08:30
Ný stjórn hjá deild landeldisbænda og deildarfundi lokið
Landeldisbændur funduðu í gær og tóku afstöðu til þriggja tillagna þar sem ein þeirra verður tekin fyrir á þinginu á morgun. Einnig var ný stjórn kosin:
- Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxey (formaður stjórnar)
- Steinþór Pálsson, forstjóri Thor Salmon
- Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja Fiskeldis
- Stefán Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs First Water
08:00
Deildafundir búgreina hefja göngu sína
Á öðrum degi af þessu þriggja daga þingi fara deildafundirnir fram. Hver búgrein er með sinn fundarsal en þar munu deildirnar afgreiða tillögur og kjósa í stjórnir.
18:00
Fordrykkur fyrir flokkaboð
Vel var mætt í fordrykkinn á fyrsta degi Búnaðarþings. Viðburðurinn var í boði þriggja verkefna: Terraforming LIFE, Mýrarlífs og Icewater. Eftir fordrykkinn var haldið í flokkaboð og mál landbúnaðarins rædd við stjórnmálamenn.







