Beint í efni

Fagfundur sauðfjárræktarinnar

13.04.2023

10:00 - 16:00

Fagfundur sauðfjárræktarinnar 2023 verður haldinn í Ásgarði á Hvanneyri fimmtudaginn 13. apríl kl. 10.00. Fundurinn er haldinn af Fagráði í sauðfjárrækt í samstarfi við Bændasamtök Íslands, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands. Dagskrá verður kynnt þegar nær dregur. Fundinum verður streymt beint á netinu og er hann opinn öllum.