Beint í efni

Bændasamtök Íslands eru málsvari bænda og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.

Sterk og öflug Bændasamtök eru lykillinn að því að rödd bænda heyrist skýrt og greinilega þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þeirra.

Meginmarkmið samtakanna er að beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstrarskilyrðum í landbúnaði auk þess að miðla upplýsingum og sinna fræðslu til sinna félagsmanna.

Þá halda Bændasamtökin úti einu mest lesna dagblaði landsins, Bændablaðinu, sem sent er endurgjaldslaust á öll lögbýli á Íslandi. 

Á Búnaðarþingi 2023 var stefnumörkun Bændasamtakanna samþykkt af fulltrúm á þinginu en hana má nálgast hér fyrir neðan ásamt skjali um starfsemi BÍ í samþykktum þeirra.

Stefnumörkun Bændasamtakanna