Aðild Búðardalur
Félag nautgripabænda við Breiðafjörð
Um félagið:
Félag nautgripabænda við Breiðafjörð var stofnað 12. mars 2007. Það tók við af Mjólkursamlaginu í Búðardal sem var stofnað 1958 og var þá framleiðendafélag kúabænda á Skógarströnd og Dalasýslu og síðar bættust inn í félagið kúabændur í Barðastrandasýslum. Mjólkursamlagið í Búðardal hóf síðan starfsemi sína 18. mars 1964, en fram að þeim tíma hafði mjólkin verið flutt í Borgarnes. Félagið er hagsmunafélag kúabænda á svæðinu og hefur m.a. staðið fyrir mjólkurflutningunum, en hefur auk þess unnið að ýmsum hagsmunamálum bændanna s.s. samgöngumálum.
Stjórn 2020-2021 skipa:
Sigrún Hanna Sigurðardóttir, Lyngbrekku 2 (formaður)
Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Miðskógi
Gústaf Jökull Ólafsson, Miðjanesi
Fulltrúi á aðalfund LK 2020:
Aðalmaður:
Sigrún Hanna Sigurðardóttir, Lyngbrekku 2
Varamaður:
Gústaf Jökull Ólafsson, Miðjanesi