Smitvarnir á ferðalögum
Til að tryggja að ekki berist smitsjúkdómar til landsins er brýnt að viðhafa eftirfarandi reglur við heimför:
- Setjið föt sem notuð hafa verið við heimsóknir í búfjárhús í plastpoka við heimför, einnig skó.
- Best er að láta fötin í hreinsun við heimkomu, eða sótthreinsa vel t.d. með Virkon eða öðru sambærilegu efni.
Ath. að klór er ekki mjög virkur t.d. gegn Gin- og klaufaveiki veirunni. - Aldrei ætti að líða skemmri tími en 48 klst. frá því að farið er úr erlendu fjósi þar til að farið er í fjós hér heima
- Ekki ætti að nota skóna í 5 daga eftir sótthreinsun.
Almennt er ferðafólk hvatt til þess að viðhafa smitgát í öllum heimsóknum til bænda og t.d. að snerta hvorki dýr né fóður að óþörfu.